Lífið

Geimverurnar mæta bálillar til baka í framhaldi Independence day

Birgir Olgeirsson skrifar
Hvíta húsið í Bandaríkjunum fékk að finna fyrir því í fyrri myndinni.
Hvíta húsið í Bandaríkjunum fékk að finna fyrir því í fyrri myndinni. Vísir/Imdb.com
Risaeðlukvikmynd er stærsta mynd ársins, ný mynd um Tortímandann á leiðinni og X-Files þáttaröð í bígerð. Þetta hljómar allt mjög kunnuglega og voru þessari sögur sagðar tíunda áratug síðustu aldar sem er að sjálfsögðu löngu liðinn. Það sér þó ekki fyrir endann á fortíðarþrá bandarískra kvikmyndagerðarmanna enda mala endurgerðir þessara risamynda frá tíunda áratugnum gull í miðasölu kvikmyndahúsa og nú er ein slík risaendurgerð á leiðinni.

Það er framhaldsmynd Independence Day, stærstu myndar ársins 1996, sem hefur fengið nafnið Independence Day: Resurgence (Endurvakningin). Myndin er væntanleg í kvikmyndahús í júní á næsta ári en nú þegar er komin lýsing á söguþræði myndarinnar.

Lesendum, sem vilja ekkert vita um þessa mynd áður en hún kemur í kvikmyndahús á næsta ári, er bent á að láta staðar numið og lesa ekki lengra því næsta málsgrein mun gefa ýmislegt upp um söguþráðinn, en þó alls ekki söguna alla.

Jeff Goldblum mætir aftur í framhaldsmyndinni en ekki Will Smith.
„Við vissum alltaf að þær kæmu aftur,“ segir í lýsingunni en framhaldsmyndin er sögð bjóða upp á mikið sjónarspila á áður óþekktum skala. Með aðstoð framandi tækni, sem mannfólkið komst yfir eftir átökin við geimverurnar í fyrri myndinni, hafa þjóðir heimsins myndað ógnarsterkt varnarbandalag til að verja jörðina fyrir innrás.

„En ekkert gat undirbúið okkur fyrir styrk þróaðs herafla geimveranna. Aðeins hugvit hugrakkra karla og kvenna getur bjargað plánetunni okkar í þetta skiptið.“

Margir þeirra sem léku í fyrri myndinni snúa aftur. Þar á meðal Jeff Goldblum, Bill Pullman, Vivica A. Fox og Judd Hirsch en nafn leikarans Will Smith er ekki að finna á síðu myndarinnar á vef IMdB.com.

Smith hafði áður verið spenntur fyrir að leika í myndinni en eftir að myndin After Earth kom út árið 2013 dvínaði áhugi leikarans á vísindaskáldskap. Roland Emmerich, leikstjóri fyrri myndarinnar og framhaldsmyndarinnar, sagðist hafa verið í samningaviðræðum við Smith. Emmerich hafði hugsað sér að láta myndina fjalla um samskipti persónu Smith úr fyrri myndinni við son sinn.

After Earth var einmitt „feðgamynd“ sem gekk ekki vel og sagðist Smith vera kominn með nóg af framhaldsmyndum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×