Lífið

Júlíspá Siggu Kling - Ljón: Margt á döfinni hjá þér

Sigga Kling skrifar
Elsku einstaka ljón. Það væri líklega ekkert að gerast ef þú dveldir ekki á móður jörð. Að sjálfsögðu eru tilfinningarnar búnar að vera þandar eins og flottasta fiðlan í sinfóníunni. Þú hefur verið lítið í þér en einnig stórhuga og haft tröllatrú á öllu.

Það eru ofur miklar tilfinningar í gangi. Þú ert að tengjast straumum frá veröldinni sem eiga eftir að hjálpa þér að hreinsa út óöryggi, því í raun eru erfiðleikar þínir bara tengdir því. Þú skalt standa upp því þú ert að fara inn í merkilegasta tíma ársins. Það koma til þín tækifæri sem munu skora á þig að gera betur.

Þú þarft að taka afstöðu gagnvart fólki sem vill jafnvel ekki að þú sért alltaf í góðri orku svo vinslit gætu átt sér stað. En stundum þarf maður að skilja við suma vini sína. Vinátta er eins og skip. Stundum fer skipið sem þú ert á hraðar en önnur skip og stundum þarft þú einfaldlega að fara hraðar en vinur þinn. En ef vináttan er sönn verðið þið samferða aftur seinna.

Flutningar eða breytingar á högum eru á döfinni hjá þér. Þetta er þinn tími til að standa sterkt og til hamingju með það.

Mottó: Alheimsorkan er að hjálpa mér. Ég get aðlagað mig að öllu.



Fræg ljón: Cara Delevingne fyrirsæta, Ágústa Eva Erlendsdóttir leik- og söngkona, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Birgitta Haukdal söngkona, Barack Obama Bandaríkjaforseti, Ásdís Rán fyrisæta, Geir Ólafsson söngvari, Þórunn Antonía alheimsstjarna, Jón Óttar Ragnarsson athafna- og fjölmiðlamaður, Jennifer Lopez söngkona, Diddú.

 


Tengdar fréttir

Júlíspá Siggu Kling - Fiskur: Ekki láta streituna yfirbuga þig

Elsku meðvirki fiskur. Ég hef stúderað þig lengi og meðvirkasta fólk í heimi er í þínu merki. Þú ert alltof góður, gefur alltof mikið og svo getur þú orðið innanpirraður. Það er allt í lagi að láta fjúka í sig, vera leiður og fara stundum í fýlu. Þú getur ekki alltaf verið uppistandarinn í partýinu.

Júlíspá Siggu Kling - Tvíburi: Slepptu örygginu um stund

Elsku fallegi tvíburi. Það virðist margt hafa verið að gerast hjá þér. Þú vilt breytingar í líf þitt og það eru mörg tákn búin að vera uppi síðustu tvo mánuði sem sýna þér að það gætu mjög góðir hlutir verið á leið inn í líf þitt.

Júlíspá Siggu Kling - Vog: Með friðinn að leiðarljósi

Varkára en samt öfluga vogin mín. Þú skalt vera þakklát fyrir alla þá heppni sem er að koma til þín og leysir upp leiðindi, ef þér finnst þau hafa verið hjá þér. Þú munt hægt en örugglega sjá að þú ert að gera rétt. Þú átt eftir að gera mjög gott samkomulag við einhvern náinn þér og þér á eftir að líða miklu betur með það.

Júlíspá Siggu Kling - Bogmaður: Nýttu þér heppnina þína

Besti, besti bogmaður. Þú hefur svo sterkan kjarna og þú veist alltaf hvað þú ætlar að gera. Þú þarft að gera allt svo vel að maður öfundar þig stundum. Happdrætti Háskóla Íslands sagði að bogmaðurinn og vogin væru heppnustu merkin, miðað við þá sem hafa fengið þar vinninga. Þessu trúi ég. Þú átt að nýta þér að það er yfir þér sérstök heppni.

Júlíspá Siggu Kling - Sporðdreki: Vanilla gerir þér gott

Elsku fagri sporðdrekinn minn. Þú ert gæddur svo góðri eftirtekt að það virðist ekkert fram hjá þér fara. Þú hefur svo mikinn áhuga á fólki og það er eins og þú vitir hvað er að fara að gerast hjá sumum. Þú þarft að efla þennan kraft hjá þér og muna að fyrsta hugsunin er sú rétta.

Júlíspá Siggu Kling - Meyjan: Tímabil sameiningar

Elsku þrautgóða meyjan mín. Þetta er tímabil sameiningar. Þú munt ákveða að gifta þig eða ert jafnvel nýbúin að því. Það byrja ný sambönd hjá mörgum meyjunum og þú ert sko tilbúin að ganga inn í ljósið, en þú þarft bara að draga frá gardínurnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.