Bíó og sjónvarp

Næsti Kóngulóarmaður er ansi lipur

Birgir Olgeirsson skrifar
Tom Holland er næsti Spiderman.
Tom Holland er næsti Spiderman. Vísir/IMdB/Instagram
Hinn nítján ára gamli Tom Holland mun leika Kóngulóarmanninn í næstu uppfærslu Marvel-fyrirtækisins á þessari ofurhetju. Leikstjóri myndarinnar verður Jon Watts en hún verður frumsýnd 28. júlí árið 2017.

Einhverjir gætu kannast við kauða úr kvikmyndinni The Impossible þar sem hann lék son hjóna sem Naomi Watts og Ewan McGregor léku en myndin sagði frá raunum fjölskyldu sem lifði af flóðbylgjuna miklu við Indlandshaf árið 2004.

Í vetur birtist hann í mynd leikstjórans Ron  Howard sem nefnist In the Heart of the Sea. Mótleikari hans í þeirri mynd er Chris Hemsworth en sá hefur getið sér gott orð fyrir túlkun sína á þrumuguðinum Þór í Marvel-myndunum.

Holland er þriðji leikarinn frá árinu 2002 til að leika Kóngulóarmanninn en síðast var það Andrew Garfield sem lék ofurhetjuna tveimur myndum.

Margir vildu hreppa þetta hlutverk en að lokum varð Holland fyrir valinu en ef eitthvað er að marka Instagram-aðgang kauða á hann eftir að geta framkvæmt nokkur áhættuatriði.

More fun more fun

A video posted by ✌️ (@tomholland2013) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.