Lífið

Dóttir Paul Walkers minntist föður síns með hjartnæmum hætti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vísir
Leikarinn Paul Walker lést eftir hræðilegt bílslys í nóvember árið 2013. Hann skildi eftir sig dóttur sem heitir Meadow Walker og hafa Instagram myndir frá henni vakið mikla athygli.

Hún setti inn myndir af sér og pabba sínum á feðradaginn síðastliðin sunnudag og tileinkaði hún myndunum Paul Walker.

Hún skrifar einfaldlega: „Gleðilegan feðradag“ við myndirnar en þær má sjá hér að neðan.

Sjá einnig: Paul Walker látinn

Walker lék í hinum gríðarlega vinsæla Fast and the Furious-myndaflokki, en meðal annarra kvikmynda hans eru Varsity Blues, Into the Blue, She's All That og Takers.

happy Father's Day

A photo posted by Meadow Walker (@meadowwalker) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×