Lífið

Fólkið á Secret Solstice: Ánægðar með Stormzy

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Snædís og Steinunn voru ánægðar með Stormzy.
Snædís og Steinunn voru ánægðar með Stormzy. Mynd/GyðaLóa
 Veðrið leikur við gesti tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice sem fer fram í Laugardalnum nú um helgina.

Lokakvöld hátíðarinnar er í kvöld og er margt um manninn. Meðal þeirra sem eru á stjá á hátíðarsvæðinu eru þær Steinunn Jónsdóttir og Snædís Ylfa Sveinsdóttir. Þær eru sammála um að Stormzy hafi verið frábær á föstudaginn.

"Svo sá ég líka The Wailers í dag og síðan var ég að spila með Reykjavíkurdætrum þannig þetta er búið að vera mjög næs," segir Steinunn en hún er meðlimur í Reykjavíkurdætrum auk þess sem hún er í hljómsveitinni AmabAdamA.

Snærós er einnig ánægð með Gísla Pálma og segir hann hafa verið afar nettann.

Steinunn og Snærós eru líkt og margir spenntar fyrir að sjá FKA twigs og Wu-Tang Clan og flýta sér af stað þar sem FKA twigs er við það að byrja að spila.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×