Jökull fer til HK í glugganum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. júní 2015 15:30 Jökull lék með ÍBV í fyrra. vísir/vilhelm
Jökull I. Elísabetarson mun leika með HK í 1. deildinni seinni hluta tímabilsins en hann verður löglegur með liðinu þegar félagaskiptaglugginn opnar 15. júlí. Þetta staðfesti Jökull í samtali við Fótbolta.net í dag. Jökull lék fimm leiki með KV í 2. deildinni í sumar en er hættur hjá Vesturbæjarliðinu. Jökull hefur átt við bakmeiðsli að stríða sem hann kennir gervigrasinu í Vesturbænum (heimavelli KV) um. „Ég hef verið að kenna gervigrasinu í Vesturbænum um meiðslin og er þessa stundina í meðferð hjá sjúkraþjálfara og reyna koma mér í almennilegt stand áður en félagaskiptaglugginn opnar," sagði Jökull við Fótbolta.net. „Pælingin er að klára tímabilið með HK, síðan sjáum við til með framhaldið. Stefnan var sett á að spila með KV í allt sumar en ég einfaldlega treysti mér ekki að æfa og spila á gervigrasinu í Vesturbænum. Það verður því að koma í ljós hvernig þetta gengur með HK.“ Jökull lék með ÍBV í Pepsi-deildinni í fyrra en þar áður lék hann með Breiðabliki um fjögurra ára skeið. Hann varð Íslandsmeistari með Blikum 2010 en hann hafði áður orðið meistari með KR í tvígang, 2002 og 2003. HK vann ævintýralegan sigur á KA í síðustu umferð en það var fyrsti sigur liðsins síðan í 2. umferð. Kópavogsliðið er í 9. sæti 1. deildar, með níu stig eftir átta umferðir.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Ótrúlegur sigur HK Aron Þórður Albertsson tryggði HK 3-2 sigur á KA í rosalegum leik í fyrstu deild karla í dag. KA var 2-1 yfir þegar uppbótartíminn fór af stað. 27. júní 2015 17:54 Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Fótbolti Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Körfubolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Fleiri fréttir Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Sjá meira
Ótrúlegur sigur HK Aron Þórður Albertsson tryggði HK 3-2 sigur á KA í rosalegum leik í fyrstu deild karla í dag. KA var 2-1 yfir þegar uppbótartíminn fór af stað. 27. júní 2015 17:54