Könnunarfar NASA, New Horizons, komst í heilu lagi fram hjá reikistjörnunni Plútó í gær.
Stjórnstöð leiðangursins nam merki geimfarsins í nótt en það gaf til kynna að allur búnaður farsins væri heill. Merkið var fjóra klukkutíma og 25 mínútur að berast frá geimfarinu og í risastóran gervihnattadisk NASA, sem staðsettur er á Spáni.
Farið fór í gær fram hjá ystu reikistjörnunni í sólkerfinu okkar en ekkert far hefur áður komist svo nálægt henni. Það ferðast um á 14 kílómetra hraða á sekúndu og hefði því árekstur við nokkurn skapaðan hlut líklega gjöreyðilagt geimfarið.