Hvað gerðist?
Palmer og aðstoðarmenn hans lokkuðu Cecil út úr heimkynnum sínum í Hwange þjóðgarðinum í Zimbabwe þar sem ólöglegt er að veiða. Þeir freistuðu Cecil með því að festa dýrshræ við bíl á landareign fyrir utan þjóðgarðinn til þess að komast hjá veiðibanninu í garðinum. Þar skaut Palmer Cecil með lásboga en örinn særði aðeins dýrið. Við það hófst eltingarleikur sem stóð í 40 tíma en endaði með því að Palmer skaut Cecil með rifli. Cecil var svo afhöfðaður og fláður.
Afhverju eru allir brjálaðir?
Cecil var eitt frægasta ljón Afríku, helsta tákn og aðdráttarafl Hwange þjóðgarðsins í Zimbabwe. Cecil var sérstaklega vinsæll í Zimbawe, auðþekkjanlegur á sínum mikla svarta makka. Cecil var þó einnig vel þekktur utan landsteinanna. Vísindamenn við Oxford-háskóla sem rannsökuðu vernd ljóna í Zimbabwe höfðu m.a. skoðað Cecil í rannsókn sinni.
Einnig þykir aðferð Palmer og félaga við veiðina hafa verið ófyrirleitin en eins og fyrr sagði lokkuðu þeir Cecil úr vernduðum heimkynnum sínum. Löglegt er að veiða ljón í Zimbabwe en til þess þarf þó tilskilin leyfi. Yfirvöld í Zimbabwe telja að veiðimennirnir hafi ekki fengið þau leyfi sem til þarf og hafa handtekið leiðsögumanninn og landeigandann sem aðstoðaði við veiðina. Palmer er einnig eftirlýstur en hann hefur lýst yfir sakleysi sínu.
„Ég réði fagmenn til starfa til að aðstoða mig og þeir fengu öll leyfi sem til þar. Samkvæmt minni vitneskju var allt við ferð mína og það sem ég gerði í henni löglegt. Ég vissi ekki að ljónið sem ég veiddi hefði verið vel þekkt. Ég reiddi mig á þá þekkingu sem þeir heimamenn sem ég réði til að hjálpa mér bjuggu yfir“ sagði Palmer við Minnesota Star Tribune. Samstarfsmenn hans hafa einnig lýst yfir sakleysi sínu og segjast hafa verið með leyfi en Þjóðgarðsyfirvöld segja það ekki vera rétt.
Hver urðu viðbrögðin?
Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Fljótlega varð nafn Walter James Palmer að trend-i á heimsvísu á samfélagsmiðlinum Twitter enda kepptust menn um að lýsa yfir vanþóknum á drápinu á Cecil og óhætt er að segja að Palmer sé óvinsælasti maður jarðarinnar um þessar mundir:
It's not for food. It's not the shooting, or tin cans would do. It must just be the thrill of killing. Mental. http://t.co/0fjtXoC1ML
— Ricky Gervais (@rickygervais) July 28, 2015
Ohh the dentist "had no idea" the lion was famous. Because had he known, he would never have murdered it without asking for a selfie first.
— olivia wilde (@oliviawilde) July 28, 2015
This #WalterPalmer is a poor excuse of a human being!
— Cara Delevingne (@Caradelevingne) July 28, 2015
(2/5): Because shooting #CecilTheLion in the park would have been illegal, he needs to be extradited, charged, &, preferably, hanged.
— PETA (@peta) July 28, 2015
Truly. I'd put a cross bow bolt through Walter Palmer then track him from 40 hrs, shoot him, behead him, skin him and sleep peacefully.
— hardeep singh kohli (@misterhsk) July 28, 2015
RIP #CecilTheLion and the many animals murdered for the pleasure of rich, egotistical, mentally ill trophy hunters. pic.twitter.com/v4iN8gwabh
— Ulrich J van Vuuren (@UlrichJvV) July 28, 2015
Dental practice belonging to controversial big game hunter Walter Palmer completely locked down. All shades drawn. pic.twitter.com/opvzJp8ea9
— Paul Blume (@PaulBlume_FOX9) July 28, 2015
Can't make this up. Walter Palmer dental office morphed into makeshift memorial. Suppose #CecilTheLion in foreground pic.twitter.com/tW59sUuB3J
— Paul Blume (@PaulBlume_FOX9) July 28, 2015
Síða tannlæknastofunnar á umsagnarsíðunni Yelp fékk einnig að finna fyrir því en hver notandinn á fætur öðrum skildi eftir 5 stjörnu umsagnir þar sem Palmer og tannlæknastofa hans var rökkuð niður.
Ef notandi gefur 5 stjörnu umsögn verður hún sýnilegri en ella. Forsvarsmenn Yelp hófust þó handa við að taka niður þessar umsagnir enda er það brot á notendaskilmálum síðunnar að skilja eftir umsagnir sem byggja á fréttaflutningi en ekki eiginlegri reynslu af viðskiptum við þann aðila sem umsögnin er um.
Holy SHIT @Yelp is deleting the reviews of Dr. Palmer's practice at an impressive pace. (People keep reposting.) pic.twitter.com/ccQXnzbOQY
— Scafe for CEO (@erinscafe) July 28, 2015
Ekki er vitað hvar Palmer heldur sig þessa dagana en hann hefur ráðið þjónustu almannatengils til þess að glíma við þetta mál fyrir sig.
The home of Dr. Walter Palmer. The big game hunter is not here. Not at work. Still looking... #CecilTheLion pic.twitter.com/Xv29nKTBaj
— Paul Blume (@PaulBlume_FOX9) July 28, 2015