Dæmdur kynferðisbrotamaður: Framseldur til Íslands frá Hollandi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. júlí 2015 16:15 Chastity Rose Dawson Gísladóttir í Druslugöngunni árið 2013 ásamt föður sínum.
Ingvar Dór Birgisson, þrítugur karlmaður, var handtekinn í Hollandi í desember síðastliðnum eftir að hafa flúið land. Þegar hann hélt af landi brott var yfirvofandi dómur í kynferðisbrotamáli auk þess sem Ingvar Dór er grunaður um sambærilegt kynferðisbrot sem lögregla hefur til rannsóknar. Ingvar fékk þriggja og hálfs árs fangelsisdóm í janúar síðastliðnum fyrir nauðgun. Hann var framseldur til Íslands frá Hollandi í júní og situr nú í gæsluvarðhaldi. Nauðgunin, sem Ingvar Dór hlaut dóm fyrir í janúar síðastliðnum, átti sér stað snemma árs 2010. Kæra var lögð fram í júní það ár eða fyrir rúmlega fimm árum. Hlaut Ingvar Dór þriggja og hálfs árs fangelsi í september 2013 en málinu var áfrýjað til Hæstaréttar sem vísaði því aftur heim í hérað. Ástæðan var að Hæstiréttur taldi að verulegir annmarkar hefðu verið á rannsókn málsins og héraðsdómur hefði ekki lagt mat á öll þau sönnunargögn sem færð hefðu verið fram.Sjá einnig:Flúði til Cayman eyjaAðalmeðferð fór fram að nýju í lok síðasta árs. Meðal sönnunargagna í málinu var ljósmynd í farsíma Ingvars Dórs sem tekin var sama dag og nauðgunin átti sér stað. Hún sýndi nakin rass í rúmi hans. Ingvar Dór viðurkenndi að myndin væri tekin í rúmi hans en væri ekki af stúlkunni. Stúlkan þekkti hins vegar rassinn og sagðist hafa snúið sér við um leið og hann var að taka myndina. Þótti framburður stúlkunnar trúverðugur á sama tíma og engar góðar skýringar hefðu komið fram hjá hinum dæmda. Einn dómari taldi þó ósannað að kynferðismök hefðu átt sér stað og taldi að sýkna ætti Ingvar Dór af þeirri ákæru. Hann ætti þó að greiða skaðabætur. Hlaut Ingvar Dór þriggja og hálfs árs dóm á ný. Málinu er ekki enn lokið því dómnum hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar þar sem það verður tekið fyrir í lok september. Þinghald verður lokað.Nýtflutt til Íslands og taldi Ingvar Dór vera 16 eða 17 ára Ingvar Dór var dæmdur fyrir að hafa annars vegar áreitt 14 ára stúlku kynferðislega á heimili sínu og í síðari heimsókn stúlkunnar nauðgað henni. Stúlkan, Chastity Rose Dawson Gísladóttir, lýsir í viðtali við Pressuna hve biðin eftir því að málinu ljúki sé óbærileg og hafi markað djúp spor í líf hennar.Sjá einnig:Þrjú og hálft ár fyrir að nauðga fjórtán ára stúlkuChastity segist hafa komist í kynni við manninn í gegnum forritið Compare Hotness. Hún hafi verið nýflutt til Íslands frá Bandaríkjunum, ekki þekkt marga og verið í vinaleit. Taldi hún Ingvar líklega sextán eða sautján ára gamlan. Samkvæmt heimildum Vísis er Ingvar Dór til rannsóknar vegna sambærilegs kynferðisbrots og það sem hann hlaut dóm fyrir nú í janúar. Hann flúði sem fyrr segir Ísland í desember, var framseldur til Íslands í júní og situr nú í gæsluvarðhaldi samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hann flúði einnig til Cayman-eyja á meðan á rannsókn lögreglu stóð árið 2012 og gekk illa að birta honum ákæru. Þetta er því í annað skiptið sem hann flýr land vegna málsins. Chastity segir í samtali við Vísi hafa opnað sig vegna málsins á Facebook fyrir tveimur árum vegna seinagangsins. Henni fannst vera kominn tími á að almenningur yrði upplýstur þar sem svo hægt gengi að fá niðurstöðu í málið sem hafi verið á borði lögreglu frá því sumarið 2010.
Tengdar fréttir Þrjú og hálft ár í fangelsi fyrir að nauðga fjórtán ára stúlku Ingvar Dór Birgisson, þrítugur karlmaður, var dæmdur fyrir að hafa nauðgað og kynferðislega áreitt fjórtán ára stúlku vorið 2010. 2. mars 2015 10:34 Í þriggja og hálfs ára fangelsi fyrir að nauðga 14 ára stúlku Flúði land eftir að kæra barst til lögreglu. Brot mannsins alvarleg. 5. september 2013 14:34 Mest lesið „Mér líður eins og þeir hafi kúkað á leiðið“ Innlent Kourani þurfti undanþágu til að heita Jóhannesson Innlent Gekk fram á sofandi ferðamann á heilsugæslunni Innlent Lögreglumaður skaut konu í höfuðið á heimili hennar Erlent Bráðabirgðamælingar sýna heitasta dag jarðar frá upphafi mælinga Erlent Það getur skipt máli fyrir heilsuna hvar þú situr í flugvél Innlent Kári vandar um við heimsfrægan rithöfundinn Innlent Aukin hætta á eldgosi innan bæjarmarka Grindavíkur Innlent Umboðsmaður Alþingis áminnir ríkislögreglustjóra Innlent Borgi sig ekki að reisa nýja varnargarða nær Grindavík Innlent Fleiri fréttir Aukin hætta á eldgosi innan bæjarmarka Grindavíkur Slapp með skrámur eftir veltu á Reykjanesbraut Gekk fram á sofandi ferðamann á heilsugæslunni Hlutfall nýnema sem útskrifast aldrei verið hærra Sóttu veikan göngumann á Hornstrandir „Þetta eru ekki bara viðvörunarbjöllur heldur rauð ljós“ Áskorun fyrir konu úti á landi að tjá sig um menntamál „Mér líður eins og þeir hafi kúkað á leiðið“ Borgi sig ekki að reisa nýja varnargarða nær Grindavík Kourani þurfti undanþágu til að heita Jóhannesson Hættumat og nafnabreytingar brotamanna Margt enn á huldu um sprenginguna á flugvellinum Kári vandar um við heimsfrægan rithöfundinn Þurftu ekki að greiða í Strætó vegna bilunar Umboðsmaður Alþingis áminnir ríkislögreglustjóra Handtökur í tengslum við slagsmál og líkamsárás Það getur skipt máli fyrir heilsuna hvar þú situr í flugvél Skólabílstjóri og hestamálari úr Hvalfjarðarsveit Þróunin sé merki um að afleiðingar Covid séu betur að koma í ljós Jákvæðar hliðar færri ferðamanna og vendingar í bandarískum stjórnmálum Fínn hvítur salli gerir íbúum Laugarneshverfis lífið leitt Kourani tekur upp íslenskt nafn Lenti í ofbeldissambandi með frönskum bíl Hafa áhyggjur af auknu ofbeldi, áhættuhegðun og vopnaburði barna Ná síður að hirða salernispappír vegna niðurskurðar „Ég skil ekki af hverju þær fagna því ekki bara“ Nafn Íslendingsins sem fannst látinn í Taílandi Málflutningur Viðskiptaráðs óásættanlegur Sú eina sem kemur til greina, afdráttarlaus ráðherra og klósettvandræði Mikill meirihluti landsmanna mótfallinn sjókvíaeldi Sjá meira
Þrjú og hálft ár í fangelsi fyrir að nauðga fjórtán ára stúlku Ingvar Dór Birgisson, þrítugur karlmaður, var dæmdur fyrir að hafa nauðgað og kynferðislega áreitt fjórtán ára stúlku vorið 2010. 2. mars 2015 10:34
Í þriggja og hálfs ára fangelsi fyrir að nauðga 14 ára stúlku Flúði land eftir að kæra barst til lögreglu. Brot mannsins alvarleg. 5. september 2013 14:34