Tónlist

Frumsýning á Vísi: Helgi Valur syngur um Myspace-stelpuna

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Maya Andrea L. Jules í hlutverki Magnoliu sést hér á göngu á ströndinni.
Maya Andrea L. Jules í hlutverki Magnoliu sést hér á göngu á ströndinni. Vísir/skjáskot
Vísir frumsýnir í dag nýtt myndband listamannsins Helga Vals við lag hans Magnolia 2.

Lagið er lag af plötunni „Notes From the Underground" en að sögn Helga Vals er Magnolia 2 samið um stelpu, Magnoliu Wild Wind, sem hann kynntist á Myspace árið 2005.

Hann segir að vinátta þeirra hafi lifað samfélagsmiðilinn og að þau hafi verið vinir á Facebook.

„Við höfum alltaf átt mjög sérstaka vináttu þrátt fyrir að við höfum aldrei hisst í eigin persónu" segir Helgi. „Við lesum sömu rithöfunda, hlustum á sömu tónlistarmenn og höfum gaman af sömu bíómyndum. Við upplifum sama einmannaleika og ég held að það merki að við séum sálufélagar".

Magnolia og Helgi Valur hafa deilt með sér tónlist á internetinu í 10 ár og iðullega búa þau til þema þar sem þrjú lög eru valinn. Má þar nema þemu á borð við lög til að vakna við, lög í rigningu og lög sem fara vel saman við byltingu. Lögin eru nú farin að skipta hundruðum.

Hægt er að finna þennan playlista með lögum sem Helgi Valur og Magnolia hafa deilt á Youtube undir titlinum Magnolia.

Myndbandið er framleitt af Todd A. Zuvich sem er Kaliforníubúi líkt og Magnolia. En í myndbandinu leikur Maya Andrea L. Jules hlutverk Magnoliu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.