Lífið

Ágústspá Siggu Kling – Vatnsberi: Þú nálgast takmarkið

Sigga Kling skrifar
Elsku Vatnsberinn minn. Að vera hamingjusamur er hugarástand og þú þarft að framkvæma það sem gerir þig hamingjusaman til þess að láta þér líða betur! Hættu að lesa núna – hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug til þess að auka hamingjuna?

Skrifaðu það niður því að fyrsta hugsunin er skilaboð frá alheiminum til þín. Það er búin að vera óþolinmæði í kortunum en þú sigrar ekkert með henni því pirringur út í hluti eða fólk er eina hindrun þín í augnablikinu, og ansi er það nú lítið.

Það fer allt á fulla fart hjá þér í haust því það er að raðast upp röð skemmtilegra atvika sem eiga eftir að koma þér að takmarkinu þínu. Útlönd munu skrifa einhvern skemtilegan kafla hjá þér og þú finnur fyrir því frelsi sem þú þarft.

Ég vil skila því til þín að það þarf stundum að brjóta reglur eða allavega beygja þær. Þitt dásamlega og rausnarlega hjartalag á eftir að hafa áhrif á fólk og það gæti gengið svo langt að fólk reyni hreinlega að flytja heim til þín.

Hafðu engar áhyggjur þótt þú eyðir eitthvað um efni fram því þú átt eftir að enda á því að fá allt margfalt til baka. Sjórinn hefur mikil áhrif á þig þannig að ef þú ert með kökk í hjartanu, farðu þá niður í fjöru og hentu erfiðleikunum á haf út.

Mottó: Hamingjan felst í því að hlakka til.

Frægir í Vatnsberanum:  Pacas hans Begga, Geir Sveinsson handknattleiksþjálfari, Halla himintungl, Clark Gable leikari, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi, Yoko Ono, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Katrín Jakobsdóttir þingkona, Hilmir Snær Guðnason leikari, Rikka sjónvarpskona, María Ólafsdóttir Júróvisjónstjarna, Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kastljóss, Gunna Dís útvarpskona.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×