Lífið

Ágústspá Siggu Kling – Steingeit: Efldu þig og taktu áhættu

Sigga Kling skrifar
Elsku sérstaka Steingeitin mín. Það er þér lífsnauðsynlegt að hafa allt á rúmlega hreinu í kringum þig. Óöryggi getur nagað þig inn beini og þá sést langar leiðir að þér líður ekki vel. Það sem þú þarft að gera núna, á þessari stundu, er að efla líkama og huga. Þú þolir nefnilega ekki þegar þú bregst sjálfri þér og framkvæmir ekki það sem þú varst búin að skipuleggja.

Ég þarf að segja þér að allt gerist þegar það á að gerast og það verða engar tilviljanir á næstu mánuðum. Það er eins og þú sért að bíða eftir einhverju ákveðnu sem þú heldur að muni breyta lífi þínu en ég get alveg sagt þér það, hjartað mitt, að þú veist ekki enn hvað það er sem mun breyta lífi þínu til batnaðar.

Það er mjög mikilvægt fyrir þig að leita ráða hjá einhverjum sem getur hjálpað til og ráðlagt þér um næstu skref. Treystu. Þér munu berast fréttir sem þú tekur nærri þér en vittu til, það er ekki allt sem sýnist.

Þú átt eftir að finna svo góða lausn sem mun lagfæra það sem miður fer og ég sé að þú átt eftir að halda upp á útkomuna sem vissulega er í sjónmáli.

Það eru margir fylgjendur í kringum þig og einhver sem liggur hreinlega á þér og dregur þig niður svo þú þarft að fara að sortera fólk.

Þeir sem eru á lausu í Steingeitinni verða að þora að taka áhættu og standa með sér, því það er allt sem þarf. Peningamálin verða betri en þú bjóst við og þú átt eftir að geta leyft þér meira.

Mottó: Ég hef mikið hugrekki og með því sigra ég.

Frægar Steingeitur: Guðjón Pétur Lýðsson markakóngur, Svava Johansen í Sautján, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, dr. Kristín Ólafsdóttir, Jón Gnarr, Elvis Presley, Gunnar Þórðarson, Tómas Guðbjartsson læknahetja, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Jesú.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.