Innlent

Logandi rúta myndaði umferðarteppu um Víkurskarð

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Ferðamenn í rútunni komust út heilir á húfi.
Ferðamenn í rútunni komust út heilir á húfi. vísir/stefán
Eldur kviknaði í rútu í Víkurskarði síðdegis í dag. Fjöldi ferðamanna var í rútunni en samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Akureyrarbæjar eru allir komnir úr rútunni og heilir á húfi.

Töluverð umferðarteppa myndaðist á svæðinu þegar stöðva þurfti rútuna.

Ekki er vitað hvað olli því að eld tók í rútunni en svo virðist sem hann hafi kviknað í vélarrúminu og að sögn sjónarvotts logaði eldurinn glatt í aftari hluta rútunnar.

Rútan er frá SBA Norðurleið en ekki náðist í neinn frá fyrirtækinu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fréttastofu. Þá náðist heldur ekki í lögreglu á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×