Lífið

Dóttir Rosie O'Donnell er fundin

Atli Ísleifsson skrifar
Chelsea O'Donnell.
Chelsea O'Donnell. Mynd/Twitter
Chelsea O‘Donnell, dóttir bandaríski grínistans Rosie O‘Donnell, er fundin en lýst var eftir henni í gær þar sem ekkert hafði þá spurst til hennar í viku.

Í Twitter-færslu O'Donnell segir að Chelsea sé nú í umsjá lögreglu en hún glímir við andleg veikindi og hafði hætt að taka lyfin sín skömmu áður en hún hvarf.

Rosie O‘Donnell biðlaði í gær til almennings við að aðstoða við leitina að Chelsea sem fór með sex mánaða gamlan hund sinn af heimili sínu í Nyack í New York-ríki á þriðjudaginn í síðustu viku.

Á Twitter-síðu O‘Donnell þakkar hún öllum þeim sem aðstoðuðu við leitina.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×