Lífið

Magavöðvatröllið Peter Andre tekur þátt í breskum raunveruleikaþætti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hvernig stendur kallinn sig á dansgólfinu?
Hvernig stendur kallinn sig á dansgólfinu? vísir/getty
Peter Andre mun taka þátt í raunveruleikaþættinum Strictly Come Dancing í Bretlandi en þátturinn gengur út á það að frægt fólk er parað við atvinnudansara og keppt er í samkvæmisdönsum.

Andre sló eftirminnilega í gegn árið 1995 þegar lagið Mysterious Girl kom út. Hann fyrst og fremst þekktur fyrir útlit sitt og svakalega magavöðva.

Þættirnir hefja göngu sína í september í Bretlandi en þeir eru ekki sýndir hér á landi. Þetta er 13. serían af þessari tegund sem fer í loftið í Bretlandi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×