Lífið

Frumsýnir myndbandið þar sem horft er yfir tökustaðinn

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Tónlistarmyndbandið var tekið upp á Seltjarnarnesi, í heimabæ Ragnars.
Tónlistarmyndbandið var tekið upp á Seltjarnarnesi, í heimabæ Ragnars. Mynd/Saga Sig
Ragnar Árni Ágústsson hefur lengi starfað við tónlist á hliðarlínunni en núna á föstudaginn skríður hann úr skelinni og gefur út sitt fyrsta lag og tónlistarmyndband undir eigin nafni.

Myndbandið var tekið upp við Gróttu á Seltjarnarnesi en það verður frumsýnt í læknaminjasafninu þar í bæ. Þá fá gestir að upplifa myndbandið á meðan horft er yfir tökustaðinn. Ragnar samdi einnig á dögunum tónlistina fyrir franska mynd sem heitir Fort Buchana og hefur vakið mikla lukku og hefur meðal annars verið sýnd á MoMA í New York.

Hingað til hefur Ragnar verið tengdur við saxófóninn en hann hefur spilað með mörgum hljómsveitum í gegnum tíðina. Hann hefur verið seinustu þrjú ár að læra læknisfræði í Ungverjalandi en eftir að hann flutti út hefur hann einbeitt sér mun meira að því að semja eigin tónlist.

„Með því að hafa frumsýningarpartíið á þessum stað er ég að tengja saman tvo heima. Læknisfræðin í læknaminjasafninu og tónlistin þar sem horft verður yfir tökustaðinn. Svo er ég af Seltjarnarnesi svo það skiptir líka máli fyrir mig.“

Lagið sem um ræðir heitir Leiðin og er samið af Ragnari en Friðfinnur Sigurðsson útfærði það. Myndbandinu er leikstýrt af Frosta Jóni Runólfssyni sem gerði meðal annars heimildarmyndirnar um Grafík og Hjálma. Carmen Jóhannsdóttir vann við framleiðslu myndbandsins.

„Lagið er einlægt og rólegt. Ég er búinn að vera að læra svo mikið af tónlist frá því ég man eftir mér þannig að ég náði að taka hluti í burtu þegar ég samdi lagið. Ég samdi þetta minna frá huganum og meira frá hjartanu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.