Pétur Jóhann ráðinn til 365 miðla: Vinnur að sjónvarpsþáttum með Jóni Gnarr Stefán Árni Pálsson skrifar 14. ágúst 2015 16:25 Pétur Jóhann mun strax hefja störf.
Pétur Jóhann Sigfússon hefur verið ráðinn til 365 miðla en hann er einn ástsælasti leikari og grínisti þjóðarinnar. Hann hefur leikið í fjölda sjónvarpsþátta og kvikmynda. Hann hefur stjórnað fjölda útvarpsþátta. Hann er einn af handritshöfundum og aðalleikurum Vakta-þáttanna og skapaði þar eina ástsælustu persónu í íslensku sjónvarpi; Ólaf Ragnar Hannesson. Pétur mun starfa að íslenskri dagskrárgerð hjá 365. Hann vinnur nú þegar að sjónvarpsþáttum í samvinnu við Jón Gnarr. Þættirnir bera vinnuheitið Borgarstjórinn. Þar mun Pétur leika aðstoðarmann borgarstjórans í Reykjavík sem leikinn verður af Jóni. Vinna við þættina gengur vel og verða þeir sýndir á Stöð 2 haustið 2016. Jón Gnarr ritstjóri innlendrar dagskrár hjá 365 miðlum var að vonum glaður að fá sinn gamla vin og samstarfsfélaga til starfa. „Ég hlakka mikið til að fá Pétur Jóhann til samstarfs. Við vinnum að því að efla og styrkja vandaða, íslenska dagskrárgerð og þar gegnir hann lykilhlutverki.” „Ég hlakka mikið til að takast á við ný og spennandi verkefni hjá 365 miðlum og vinna með öllu því frábæra fólki sem þar er. Þetta er eiginlega einsog að koma aftur heim,” segir Pétur Jóhann. Nú stendur yfir útvarpsþátturinn FM95BLÖ en Pétur mun meðal annars starfa við þáttinn í vetur. Hér er hægt að hlusta á þáttinn í beinni. Pétur Jóhann er mættur aftur til starfa í FM95BLÖ! Ekki voga þér að missa af þætti dagsins ;)— Auðunn Blöndal (@Auddib) August 14, 2015
Mest lesið Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Lífið Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Lífið „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Lífið Eins og þruma úr heiðskíru lofti Lífið Kim vandræðaleg á tónleikum með nýrri eiginkonu Kanye Lífið Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Lífið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið Menning Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Lífið Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Lífið Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Lífið Fleiri fréttir Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Sjá meira