Lífið

Vogue birtir furðulegt myndband úr forsíðutöku Beyoncé

Stefán Árni Pálsson skrifar
Beyoncé verður á forsíðunni í september.
Beyoncé verður á forsíðunni í september.
Tímaritið Vogue hefur birt mjög svo furðulegt myndband en tilefnið er forsíðumynd næsta tölublaðs. Söngkonan Beyoncé verður á forsíðu september blaðsins og má sjá frá myndatökunni í myndbandinu sem er í lélegum gæðum og eins og um gamla VHS-spólu sé að ræða.

Þetta er í þriðja sinn sem hún prýðir forsíðu blaðsins og í fyrsta skipti sem þeldökk kona prýðir forsíðu septemberblaðsins.

Sjá einnig:Beyoncé prýðir forsíðu september Vogue

Septemberblaðið er stærsta blað ársins og þess er alltaf beðið með mikilli eftirvæntingu. Ritstjóri blaðsins, Anna Wintour, er greinilega hrifin af því að hafa poppstjörnur á forsíðunni, frekar en fyrirsætu og er líklegt að það hafi eitthvað með sölutölur að gera.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×