Lífið

Modern Family stjarna fór í brjóstaminnkun: „Mér leið aldrei vel“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Modern Family þættirnir eru sýndir á Stöð 2.
Modern Family þættirnir eru sýndir á Stöð 2. vísir/getty
Leikkonan Ariel Winter gekkst undir brjóstaminnkunaraðgerð í júní en hún fer með hlutverk Alex í gamanþáttunum vinsælu, Modern Family.

Í glænýju viðtali við tímaritið Glamour segist hún hafa farið úr 32F í 34D eftir aðgerðina.

„Mér leið aldrei vel með brjóstastærð mína en konur eru hlutgerðar gríðarlega mikið í þessum bransa og komið fram við þær eins og þær séu hlutir,“ segir Ariel.

Hún segir að öll fréttaskrif um hana hafi snúist um brjóstin á henni og hvernig hún hafi verið klædd. 

Ariel leikur Alex í þáttunum.vísir/getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×