Lífið

Þættir byggðir á The Notebook á leiðinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það hafa öll pör séð þessa mynd.
Það hafa öll pör séð þessa mynd. vísir/imdb
Ein allra vinsælasta rómantíska mynd sögunnar er The Notebook með þeim Ryan Gosling og Rachel McAdams í aðalhlutverkum.

Nú hefur verið ákveðið að framleiða þætti sem verða byggðir á bók Nicholas Sparks.

Sjónvarpsstöðin CW hefur nú tilkynnt að fyrirtækið hyggst hefja sýningar á The Notebook þáttum á næstu misserum.

Þættirnir munu fylgja eftir ástarævintýrum Noah og Allie í upphafi þeirra sambands. Það eiga væntanlega margir eftir að bíða eftir þessari seríu.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×