Lífið

Kim Kardashian nakin og kasólétt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kardashian er virk á samfélagsmiðlunum.
Kardashian er virk á samfélagsmiðlunum. vísir/facebook
Kim Kardashian birtir nokkuð djarfa mynd af sér á Facebook þar sem hún situr fyrir nakin og má vel sjá að hún er ólétt.

Hún og Kanye West eiga von á sínu öðru barni en Vísir greindi frá því á dögunum að drengurinn mun bera nafnið Easton. Fyrir eiga þau dótturina North West.

Sjá einnig:Nafnið á barninu ákveðið

„Til að byrja með sögðu allir að ég væri of grönn og myndir af mér hlytu að vera photoshoppaðar. Núna segja allir að ég sé of stór og því hljóta myndir af mér einnig að vera photoshoppaðar,“ segir Kim Kardashian í færslu sinni á Facebook.



„Stundum er ég mynduð þegar ég er ekki búin að borða neitt og þá virka ég grennri og aðra daga er ég nýbúin að borða og virka stærri.“

Kim segist hafa lært að elska líkama sinn. „Ég mun stækka enn meira og verð þá einnig alveg jafn falleg. Ég er bara heppin að vera yfirleitt ólétt.“

First they say I'm too skinny so I have to be faking it...Now they say I'm too big so I have to be faking it...SMH! Some...

Posted by Kim Kardashian on 11. ágúst 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.