Lífið

Einstakt augnablik og tárin streymdu niður vanga brúðgumans

Stefán Árni Pálsson skrifar
Maria Holand sló í gegn í eigin athöfn.
Maria Holand sló í gegn í eigin athöfn.
Maria Holand Tøsse kom öllum á óvart í eigin brúðkaupi þegar hún gekk syngjandi niður kirkjugólfið ásamt föður sínum.

Maria og Ronny Eidsvik gengu í það heilaga í Ålesund-kirkjunni í Noregi á dögunum. Á göngu sinni niður gólfið sögn hún lagið You Raise Me Up eftir dúóið Secret Garden en söngvarinn Josh Groban gerði lagi heimsfrægt með sinni útgáfu.

Óhætt er að segja að þetta sé eitt fallegasta atvik sem sést hefur í brúðkaupi og felldu þónokkrir tár í kirkjunni. Faðir Maria söng einnig vel valda línu í laginu og átti brúðguminn mjög svo erfitt með sig á meðan þessu öllu stóð.

Einnig má sjá, lúðrasveit, kór og allan salinn taka þátt í þessari ótrúlegu innkomu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×