Lífið

Teiknar óborganlegar myndir á Snapchat

Stefán Árni Pálsson skrifar
Á myndinni lengst til vinstri má sjá Seth Sharp og Ragnar saman á Austurvelli.
Á myndinni lengst til vinstri má sjá Seth Sharp og Ragnar saman á Austurvelli.
„Mér finnst þetta bara svo skemmtilegt,“ segir Ragnar Þór Jónsson, 24 ára háskólanemi, sem hefur vakið athygli fyrir skemmtilegar myndir á Snapchat. Hann heldur úti Snapchat-reikningnum Spekoppar en um helgina sá hann um NovaSnappið fyrir hönd Sirkús Íslands.

Ragnar hefur náð ótrúlegum tökum á Snapchat-appinu og getur teiknað magnaðar myndir á smáforritið.

Steindi á Þjóðhátíð
„Ég bauðst til þess að teikna myndir af atburðum hjá þeim og gerði til að mynda mynd af ísbirni um helgina. Hún vakti mikla lukku,“ segir Ragnar sem starfar stundum sem DJ á skemmtistöðvum bæjarins ásamt Seth Sharp.

„Krakkarnir í Sirkusnum eru allir svo ótrúlega skemmtilegir að það er bara gaman að vera í kringum þau. Ég fékk Steinda Jr. til að sitja fyrir á einni mynd hjá mér á Þjóðhátíð og hún heppnaðist mjög vel.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×