Innlent

Afkvæmi kuldapollsins færir Íslendingum slagveðursrigningu í síðsumarsgjöf

Birgir Olgeirsson skrifar
Spákort Veðurstofu Íslands fyrir morgundaginn.
Spákort Veðurstofu Íslands fyrir morgundaginn. vedur.is
Veðurstofa Íslands varar við stormi, meira en tuttugu metrum á sekúndu, á miðhálendinu á morgun. Samkvæmt textaspá stofunnar má búast við vaxandi suðaustanátt í fyrramálið, 13 – 20 metrum á sekúndu, og talsverðri rigningu sunnan- og vestan til sídegis, hvassast við ströndina. Mun hægara og þurrt á Norður- og Austurlandi framan af morgundegi, en hvessir síðan þar og fer að rigna.

Trausti Jónsson veðurfræðingur segir á bloggsíðu sinni að hann eigi von á að þetta skot gangi fljótt yfir og nái sér sjálfsagt ekki allstaðar á strik.

Hann segir þessa lægð sem sé væntanleg yfir landið í dýpsta lagi miðað við árstíma en hann segir hana vera afkvæmi kuldapollsins margfræga úr Norður-Íshafinu og rakaþrungins lofts langt úr suðvestri. Hann segir þessa lægð eiga að þokast til austur fyrir sunnan land næstu daga, en verst sé hve lengi hún verður að því. „Ekkert hlýrra kemst að á meðan – en ekkert kaldara heldur – (segja þeir nægjusömu).“

Veðurhorfur á landinu næstu daga, samkvæmt Veðurstofu Íslands:

Á fimmtudag:

Suðaustan 10-18 m/s og rigning með köflum, hvassast við suðvesturströndina, en hægari og stöku skúrir um landið norðanvert. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast fyrir norðan.

Á föstudag:

Austan og norðaustan 5-13 m/s. Rigning um landið suðaustanvert, en annars skýjað með köflum og skúrir á víð og dreif. Hiti 10 til 16 stig að deginum.

Á laugardag:

Norðaustlæg átt og víða rigning, en úrkomulítið um landið suðvestanvert. Hiti 8 til 15 stig.

Á sunnudag og mánudag:

Austlægar áttir og rigning suðaustantil, en annars dálitlar skúrir. Milt í veðri.

Búist er við stormi (meira en 20 m/s) og vindhviðum allt að 35 m/s við fjöll við suður- og suðvesturströndina eftir hádegi á morgun og á miðhálendinu

Posted by Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra on Tuesday, August 11, 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×