Rooney með þrennu og Manchester United í Meistaradeildina á ný | Sjáið mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. ágúst 2015 19:07
Manchester United tryggði sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar með sannfærandi hætti í kvöld eftir 4-0 sigur á belgíska liðinu Club Brugge í seinni leik liðanna í umspili. Manchester United vann þar með 7-1 samanlagt og verður í pottinum í Mónakó á morgun þegar dregið verður í riðla í Meistaradeildinni. Wayne Rooney opnaði markareikning sinn á tímabilinu með stæl en hann skoraði þrjú fyrstu mörk United-liðsins í leiknum. Þetta var fyrsta þrenna hans í Evrópuleik síðan á móti Fenerbahce árið 2004. Wayne Rooney leyfði Javier Hernández að taka vítaspyrnu þegar Rooney gat innsiglað fernuna en Mexíkóbúinn rann í aðhlaupinu og skaut framhjá í vítinu. Wayne Rooney skoraði eina mark fyrri hálfleiks á 20. mínútu eftir að hafa fengið skemmtilega sendingu frá Memphis Depay og Rooney kom United síðan í 2-0 á 49. mínútu eftir sendingu frá Ander Herrera. Sjö mínútum síðar skoraði Rooney þriðja markið sitt eftir sendingu frá Juan Mata og það liðu síðan ekki nema sjö mínútur þangað til að Ander Herrera skoraði fjórða markið. Javier Hernández skaut framhjá úr vítaspyrnu á 81. mínútu og tókst því ekki eins og Wayne Rooney að opna markareikning sinn á þessu tímabili. Hernández fékk annað dauðafæri í lokin en skaut þá yfir. Það kom ekki að sök því sigur Manchester var mjög öruggur og liðið er nú komið í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á nýjan leik.Þrenna Wayne Rooney Ander Herrera kemur United í 4-0
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Fleiri fréttir Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Sjá meira