Viðskipti innlent

Fimm stjörnu hótelið við Hörpu verður lúxus Marriott hótel

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Menn voru kátir í Hörpunni í dag þar sem skrifað var undir samninginn. Á myndinni eru frá vinstri: Robert C. Barber, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Richard L. Friedman, forstjóri Carpenter & Company fyrir miðju, Sandeep Walia fyrir hönd Marriott hótelanna og fjárfestirinn Eggert Dagbjartsson.
Menn voru kátir í Hörpunni í dag þar sem skrifað var undir samninginn. Á myndinni eru frá vinstri: Robert C. Barber, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Richard L. Friedman, forstjóri Carpenter & Company fyrir miðju, Sandeep Walia fyrir hönd Marriott hótelanna og fjárfestirinn Eggert Dagbjartsson. Vísir/Vilhelm
Bandaríska fasteignafélagið Carpenter & Company mun verða leiðandi í byggingu 250 herbergja, fimm stjörnu Marriott Edition hótels við Hörpu. Skrifað var undir samning þess efnis í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu í dag.

Í fréttatilkynningu vegna fyrirhugaðs hótels kemur fram að reiknað sé með að framkvæmdir hefjist snemma á næsta ári. Áður var reiknað með að framkvæmdir myndu hefjast í haust. 

Er fullyrt að hótel á staðnum muni bjóða upp á einstaka upplifun og um leið efla svæðið í kring. Ýmsir aðilar koma að samningaferlinu. Arion banki hefur komið að þáttum er snúa að lánsfjármögnun og átt frumkvæði að aðkomu fjárfesta sem leiða munu verkefnið. Þeir eru Eggert Dagbjartsson og Cartpenter&Co.

Um er að ræða lúxus útgáfu af Marriott hótelunum.
Mikla reynslu af alþjóðlegum hótelkeðjum

„Við höfum lagt ríka áherslu á að fá að þessu verkefni hæfa og reynda aðila og fundum þá í Carpenter & Company og Eggert Dagbjartsson sem koma að borðinu með mikla reynslu af hótelverkefnum í Norður-Ameríku í samstarfi við alþjóðlegar hótelkeðjur,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka. Hann segir samninginn til vitnis um að verkefnið sé komið í góðan farveg. 

„Það er mikilvægt að á þessum góða stað í höfuðborginni verði að öllu leyti vel að verki staðið og höfum við fundið til ábyrgðar hvað það varðar. Því er mjög ánægjulegt að þessum áfanga sé náð.“

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Richard L. Friedman, forstjóri Carpenter & Company, og Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka, sem leiðir fjármögnun hótelbyggingarinnar, skoða líkan af hótelinu og næsta umhverfi.Fréttablaðið/Valli
Ítrustu kröfur um útlit hafðar í huga við hönnun

Lögmenn Bárugötu ásamt KPMG á Íslandi eru ráðgjafar Carpenter & Co í verkefninu. Haraldur Flosi Tryggvason lögmaður segir að Carpenter & Co. hafi lagt mikla vinnu í verkefnið og að góður áfangi sé að samningar hafi náðst um kaupin og aðkomu Marriott.

Verkfræðistofan Mannvit og teiknistofan T.ARK hafa gegnt mikilvægu hlutverki við þróun og skipulag og halda áfram vinnu við hönnun og framhald verkefnisins. Tryggvi Jónsson, framkvæmdastjóri Mannvits, fagnar samningnum og segir stofnuna hlakka til áframhaldandi vinnu.

Ásgeir Ásgeirsson, framkvæmdastjóri T.ARK, er sama sinnis. Hann segir að ítrustu kröfur um útlit og notkunarmöguleika hótelsins verði hafðar í huga við hönnunina. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×