Innlent

2000 ferðamenn komust ekki til Akureyrar vegna veðurs

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá Akureyri.
Frá Akureyri. vísir/pjetur
Stórt skemmtiferðaskip sem leggja átti að bryggju á Akureyri í morgun þurfti frá að hverfa vegna veðurs. Um 2000 farþegar voru um borð í skipinu en vindstyrkur í höfninni var of mikill til að skipið kæmist að.

1200 farþegar höfðu bókað sér ferðir með SBA Norðurleið í dag en þar sem ekkert varð af komu skipsins varð heldur ekkert úr þeim ferðum.

„Við vorum búin að skipuleggja ferðir víðs vegar um Norðurland, til dæmis í Mývatnssveit, Laufás og að Goðafossi. Þetta er gríðarlegt tjón fyrir fyrirtækið. Við vorum búnir að smala saman einhverjum þrjátíu bílum og þrjátíu leiðsögumönnum og sumir höfðu komið að sunnan með flugi með tilheyrandi kostnaði,“ segir Gunnar M. Guðmundsson, framkvæmdastjóri SBA Norðurleiðar.

Hann segir að málið muni einhverja eftirmála þar sem fyrirtækið sé nú að skoða að senda endurkröfu annað hvort á skemmtiferðaskipið eða ferðaskrifstofuna.

Jóhannes Antonsson hjá Hafnasamlagi Norðurlands segir að svona lagað gerist ekki oft en komi fyrir. Þetta sé þó í fyrsta skipti á þessu ári sem að skemmtiferðaskip geti ekki lagt að bryggju á Akureyri.

„Þetta voru einfaldlega óviðráðanlegar aðstæður og skipið hefði ekki getað komið að annarri bryggju hér í Eyjafirði,“ segir Jóhannes í samtali við Vísi.

Aðspurður segir hann að von sé á öðru stóru skipi á morgun og að smærri skip komi svo út september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×