Bíó og sjónvarp

Næsta mynd Nolans frumsýnd 2017

Birgir Olgeirsson skrifar
Christopher Nolan.
Christopher Nolan. Vísir/Getty
Næsta kvikmynd leikstjórans Christophers Nolans verður frumsýnd 21. júlí árið 2017. Nolan hefur notið mikillar velgengni undanfarin áratug en síðsta mynd hans, Interstellar, var frumsýnd í nóvember í fyrra og hlaut ágætis viðtökur.

Það bíða því eflaust margir spenntir eftir næsta verki hans en það er kvikmyndaverið Warner Bros. sem gefur myndina út. Dagsetning frumsýningar myndarinnar eru fyrstu fregnirnar sem berast af verkefninu en kvikmyndaverið neitaði alfarið að tjá sig um hvað myndin á að fjalla.

Warner Bros. hafa gefið út allar myndir Nolans um Leðurblökumanninn – Batman Begins, The Dark Knight og The Dark Knight Rises. Þríleikurinn þénaði 2,4 milljarða dollara á heimsvísu en Warner Bros gaf einnig út myndina Inception sem þénaði 800 milljónir á heimsvísu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×