Meðal þess sem talið er að fyrirtækið muni kynna eru tveir nýir snjallsímar; iPhone 6s og 6s Plus, iPad Pro, iPad mini 4, nýja útgáfu af Apple TV og jafnvel nýtt snjallúr. Þar að auki telja ýmsir tæknimiðlar að Apple muni kynna iOS 9 og watchOS 2, sem eru stýrikerfi fyrir snjallsíma og snjallúr.
Kynningin hefst klukkan fimm í dag.
Varðandi nýja snjallsíma, hafa lekar úr búðum Apple gefið til kynna að iPhone 6s og 6s Plus muni líta nánast alveg eins út og forverar sínir. Hins vegar hafi Apple uppfært nánast allt inni í símunum. Þar á meðal fá báðar myndavélar símanna uppfærslu. Aðalmyndavél þeirra er sögð taka 12 megapixla myndir og myndbönd í 4K upplausn.
Smá viðbót, ef lesendur eru með útgáfu af iPhone sem notast við talgervilinn Siri, prófið að segja: „Hey Siri, give us a hint“.
Hins vegar þykir einnig líklegt að Apple muni kynna nýjan iPad mini. Hann verði enn mjórri og öflugri en áður.
Hið nýja Apple TV er eitt af stærri atriðum kynningarinnar. Talið er að fjórða kynslóð Apple TV bjóði upp á App store og því fylgi fjarstýring með snertiskjá, hljóðnema og hreyfiskynjara, sem geri notendum mögulegt að spila leiki í gegnum það.
Þar að auki er talið að búnaðurinn hafi verið uppfærður með betri örgjafa og meira geymsluplássi.