Innlent

Umferðarslys á Suðurlandsvegi

Birgir Olgeirsson skrifar
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna slyssins.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna slyssins. vísir/stefán
Tveggja bíla árekstur varð á Suðurlandsvegi rétt við Geitháls um klukkan fimm í dag. Eldur kom upp í öðrum bílnum  og var slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallað út. Eldurinn hefur verið slökktur en slökkviliðið er enn á vettvangi ásamt lögreglu og sjúkraflutningamönnum. Ekki er vitað um slys á fólki að svo stöddu en miklar umferðartafir eru á veginum vegna slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×