Samtök ferðaþjónustunnar sektuð um 45 milljónir vegna brota á samkeppnislögum ingvar haraldsson skrifar 18. september 2015 14:25 Grímur Sæmundsen er formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. vísir/gva
Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) hafa fallist á að greiða 45 milljónir króna í sekt vegna brota á samkeppnislögum. SAF hafa gert sátt við Samkeppniseftirlitið þar sem þau viðurkenna að hafa brotið gegn samkeppnislögum. Brotin sem um ræðir fólust m.a. í að safna verðupplýsingum fyrirtækja í ferðaþjónustu á skipulegan hátt sem í þeim tilgangi að miðla þeim til aðildarfyrirtækja sinna og hvetja til hækkunar á verði og/eða viðhaldi verðs. Þá hafi SAF stuðlaði að samræmdum skilmálum fyrirtækja á ferðaþjónustumarkaði. Auk þess hafi SAF aðstoðað við, og gefið út sjálf til aðildarfyrirtækja, leiðbeiningar fyrir ýmis gjöld sem fyrirtækin innheimta, t.a.m. gjald fyrir afpantanir á þjónustu. SAF hefur einnig fallist á að gera frekari breytingar á starfsemi sinni og innleiða m.a. samkeppnisréttaráætlun sem og að tryggja að stjórnendur og starfsmenn SAF, sem og aðildarfyrirtækja samtakanna, séu ávallt að fullu upplýstir um þær kröfur sem samkeppnisreglur gera til starfsemi fyrirtækja og samtaka fyrirtækja á samkeppnismörkuðum. Rannsókn málsins hófst árið 2006 en húsleit var gerð hjá SAF í mars 2007. Rannsókn málsins lauk í desemeber 2013. Sáttin nær til ársins 2013 en fram til þess tíma lágu inni á vefsíðu samtakanna leiðbeiningar og reglur frá fyrri tíð varðandi viðskiptaskilmála til handa aðildarfyrirtækjum að fara eftir.
Mest lesið Sjálfstætt starfandi fjölgar: „Hvað gerist þegar forstjórinn veikist?“ Atvinnulíf Hættir sem ritstjóri Bændablaðsins Viðskipti innlent Stefán Örn nýr eigandi hjá Rétti Viðskipti innlent Lætur af störfum hjá Stöð 2 eftir tuttugu ára feril Viðskipti innlent Hótel Selfoss verður Marriott hótel Viðskipti innlent „Þá hugsuðu menn: Fínt, fáum konurnar í þessi störf“ Atvinnulíf Mannauðsmál: „Enn of mikil tilhneiging til að taka ekki á málum“ Atvinnulíf JBT Marel tekið til viðskipta í Kauphöllinni Viðskipti innlent Olíufélögin hafi hætt við að elta Costco Neytendur Meta birtir óumbeðnar gervigreindarmyndir af notendum Instagram Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hættir sem ritstjóri Bændablaðsins Stefán Örn nýr eigandi hjá Rétti JBT Marel tekið til viðskipta í Kauphöllinni Hótel Selfoss verður Marriott hótel Lætur af störfum hjá Stöð 2 eftir tuttugu ára feril Engin hópuppsögn í desember Aldrei jafn margir ferðast með Icelandair Slitu kolefnisbindingarfyrirtækinu Running Tide Eigendum fjölgar hjá LOGOS Þrír og hálfur milljarður króna fyrir Perluna Blöskrar 14 prósent verðhækkun tryggingarfélags Ummæli stjórnarmanns Eflingar um sníkjudýr „til skammar“ Vigdís frá Play til Nettó Gjafabréf og alls konar flatbökudótarí vinsælar jólagjafir í ár Innkalla nagstangir sem hundar veikjast af Nýskráning fólksbíla dróst saman um rúm fjörutíu prósent Kaupsamningar nærri helmingi fleiri en í fyrra Verkalýðshreyfingin sé stærsta ógnin við starfsöryggi á veitingastöðum Slippurinn allur að sumri loknu „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Raforka til gagnavera snarminnkað Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Sjá meira