Formúla 1

Permane: Nýja Mercedes vélin 0,3 sekúndna virði

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Romain Grosjean á Lotus bílnum, gæti eflaust fundið not fyrir 0,3 sekúndur á hring.
Romain Grosjean á Lotus bílnum, gæti eflaust fundið not fyrir 0,3 sekúndur á hring. Vísir/Getty
Uppfærslan sem Mercedes kom með til Ítalíu er um 0,3 sekúndum hraðari á hring á Monza ef marka má orð Alan Permane, skipulagsstjóra Lotus liðsins.

Einungis Lewis Hamilton naut nýju vélarinnar við á Monza. Vandamál kom upp í vél Nico Rosberg á laugardeginum.

Hamilton vann keppnina með rúmlega 25 sekúndna forskoti á Sebastian Vettel á Ferrari.

Lotus hefur enn ekki fengið uppfærðu vélarnar. Permane telur vélina spara gríðarlegan tíma á hverjum hring, miðað við gömlu gerðina sem Lotus notar nú.

„Mér skilst að það muni 0,3 sekúndum (á Monza). Ég veit það ekki fyrir víst, við höfum ekki rætt við tengiliði okkar hjá Mercedes um málið. Auðvitað tökum við öllu sem við getum fengið fegins hendi, en við erum mjög ánægð með það sem við höfum,“ sagði Permane.

„Þriðju vélarnar okkar fóru í bílana á Monza og þær gengu gallalaust, en ég veit ekki hvert planið er og hvort fjórðu vélarnar okkar verði af nýjustu kynslóðinni eða ekki,“ sagði Permane að lokum.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Það helsta frá Monza

Lewis Hamilton kom fyrstur í mark og svo stóð hugsanlega til að dæma hann úr leik. Kimi Raikkonen átti frábæra tímatöku en hvað svo?

Magnussen: Ég myndi elska að aka fyrir Haas F1

Kevin Magnussen, fyrrum ökumaður McLaren liðsins hefur sagt að hann "myndi elska að aka fyrir Haas“ að því gefnu að hann fái ekki sæti hjá McLaren á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×