Innlent

Bíll með fimm ferðamönnum valt í Bárðardal

Gissur Sigurðsson skrifar
Bíllinn skemmdist mikið.
Bíllinn skemmdist mikið. Vísir/Pjetur
Fimm erlendir ferðamenn sluppu ómeiddir þegar bíll þeirra valt út af veginum í Bárðardal, sunnan við Hlíðaskóga um níu leitið í gærkvöldi.

Þeir voru að koma af Sprengisandi á leið í náttstað á Akureyri og flutti lögregla þá þangað. Bíllinn, sem er bílaleigu jepplingur, skemmdist mikið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×