Afkomandi huldufólks býr í skógarrjóðri við Reykjavík Garðar Örn Úlfarsson skrifar 29. september 2015 06:00 Tryggvi Gunnar er enn að innrétta hjá sér íverutjaldið. Þar þó komin kynding sem hann útbjó sjálfur. vísir/vilhelm „
Húsin í borginni eru eins og fangabúðir,“ segir Tryggvi Gunnar Hansen sem býr í tjaldi í rjóðri einu við mörk byggðarinnar í höfuðborginni. Tryggvi er tónlistar- og myndlistarmaður auk þess að vera þekktur torfhleðslumaður. Undanfarna áratugi hefur hann gert víðreist og meðal annars dvalist á Norðurlöndunum, í Eystrasaltslöndunum og í Karpatafjöllum í Úkraínu. Í þessum löndum leitar Tryggvi uppi náttúruunnendur sem deila lífsskoðunum hans. Nú er Tryggvi kominn heim og hefur frá því í maí gert sér athvarf í skógarrjóðri sem hann biður um að ekki komi fram hvar er. „Ég stefni að því að verða sjálfbær og hef reynt að rækta grænmeti í sumar en þar sem ég er ekki mjög reynslumikill og sumarið var lélegt gekk það fremur slælega,“ segir Tryggvi og gefur gestunum að bragða á stikilsberjum sem vaxa á svæðinu. Tryggvi segir gríðarmiklum verðmætum fargað hér. Mat og alls kyns hlutum sem hægt sé að gera við eða nýta í annað. Sjálfur hafi hann sem dæmi bjargað stráheilum reiðhjólum frá því að lenda í málmpressum Sorpu.Tryggvi vill að fólk endurheimti raunverulegt lýðræði með litlum þorpum sem velji sína fulltrúa á stærri þing.vísir/vilhelm„Endurnýtingardeild Sorpu ætti að nýta hlutina betur og jafnvel vera með skiptimarkað fyrir almenning líkt og tíðkast í Svíþjóð og skapar þar skemmtilega stemningu,“ segir Tryggvi. Einu þessara hjóla hefur hann breytt í rafmagnshjól sem hallar sér upp að húsbílnum sem Tryggvi flutti með sér frá Svíþjóð.Prótótýpa Tryggva af rafmagnshjóli og bíll sem hann flutti með sér frá Svíþjóð eru meðal muna í litla þorpinu hans.vísir/vilhelmTryggvi telur sig vera afkomanda og merkisbera náttúrufólks sem bjó hér tugþúsundum saman fyrir „lygalandnám víkinga“ sem komið hafi með yfirgangi.Þegar ungmenni dvöldu með Tryggva í sumar var þessi aðstaða til að vaska upp leirtau útbúin. Fréttablaðið/Vilhelm„Þetta var friðsamt fólk sem lifði á landi og bjó í hringlaga kotum og hellum. Benedikt Gíslason segir í bók sinni Íslendu að við höfum verið 80 til 100 þúsund manns hér fyrir. Þá tel ég að 25 prósent hafi flúið land, 25 prósent verið drepin, 25 prósent gerð að þrælum og 25 prósent flúið á fjöll. Þetta fólk var síðan kallað álfar, tröll og huldufólk. Þeir sem eru náttúrusinnaðir eins og ég eru af þessu fólki komnir. Síðan var hér óslitið þrælahald og nauðgun „bænda“, sem sagt lénsherraveldi,“ segir Tryggvi sem vill breytingar. „Áður vorum við fjölskyldur – þorp – og það er einmitt þetta þorp sem ég vil endurvekja. Ekki þorp eignarréttar heldur þorp sem vinnur að því að allir verði sjálfbærir af náttúrunni hér og án skulda og án peninga,“ lýsir Tryggvi sem sér fyrir sér 3.300 þorp með eitt hundrað manns í hverju. „Þessi þorp myndu senda sína fulltrúa til þinga en ekki bara þrjár eða fjórar hundrað manna klíkur, það er stjórnmálaflokkarnir sem eru í raun mafíuklúbbar,“ segir Tryggvi. Hluti vandans sé of stórar einingar. „Ef fleiri en níutíu kjúklingar eru í sama húsi þá verða þeir vitskertir. Samskiptakerfi sem þeir hafa byggt upp í milljónir ára brotnar niður og þeir byrja að gogga hver í annan. Svipað gildir með okkur mennina." Tryggvi bendir á að ef Íslendingar skipta með sér landinu þá komi þrjátíu hektarar í hlut hvers og eins. „Við gætum byggt allt sjálf úr náttúruefnum, án banka og peninga og pössum landið saman. Það á ekki að selja landið, ekki gefa það og ekki auka við. Stærsta ruglið er þessi vöntun, að þurfa meira og meira – sem er vaxtarhyggjan endalausa. Nú er komið að nóghyggju," segir hann. Aðspurður segist Tryggvi lítið sækja til byggða. „En ég fer samt alltaf að ná mér í einhverja næringu,“ játar hann þó enda sé sjálfbærnin ekki komin alveg til framkvæmda. Í sumar bjuggu nokkur ungmenni í tjöldum á svæðinu. Tjöldin standa enn á sínum stað en unga fólkið er horfið. Eini íbúinn býr sig undir veturinn. „Ég þarf að þétta tjaldið meðfram gólfinu og sennilega loka betur að ofan svo snjói ekki inn,“ segir Tryggvi og sýnir aðkomumönnum við svo búið hugvitssamlega kyndingu með tvöföldu kerfi sem nýtir eldivið betur. Kyndinguna bjó hann til úr notuðum hlutum. „Þetta verður allt í lagi.“Tryggvi Gunnar Hansen
Mest lesið Appelsínugular viðvaranir og heiðar lokaðar Veður „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Innlent Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? Innlent Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Innlent Clinton lagður inn á sjúkrahús Erlent Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Erlent Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Innlent Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Erlent Fleiri fréttir Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Vísnabók gefin til nýrra Hvergerðinga frá Hveragerðisbæ Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Komust með flugvélinni á ögurstundu Stærstu mál stjórnarinnar bíða til 2026 Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Segir ríkisstjórnarsáttmálana keimlíka Eitt Egilsstaðaflug en annars öllu aflýst Hvalveiðilögin barn síns tíma Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Sigurður Ingi segir áberandi glufur í sáttmálanum Endurskoða lög um hvalveiðar á kjörtímabilinu Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman „Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Óveður um jólin og Inga tók lagið á fyrsta fundi ríkisstjórnar Brást of harkalega við dyraati Inga tók jólalag á fyrsta fundi Berglind nýr dómandi við Endurupptökudóm Flugferðum aflýst Sjá meira