Lífið

Októberspá Siggu Kling – Tvíburi: Hækkaðu í tónlistinni

Sigga Kling skrifar
Elsku Tvíburi. Það fer þér engan veginn að ganga hinn gullna meðalveg, þú skemmtir þér best í aðstæðum sem koma þér á óvart og eru spennandi.

Ef þú hangir of mikið heima og gerir ekki neitt þá verður þú bara pirraður svo taktu til þinna ráða og tengdu þig við nýja hópa. Hringdu í gamla vinnufélaga eða vini, því þetta ótrúlega góða tengslanet sem þú hefur á eftir að koma þér á óvart.

Það er mikilvægt að þú mætir í alla þá fögnuði sem þér er boðið í. Hækkir í tónlistinni og hendir dramanu á haf út. Með einu brosi munt þú kynnast magnaðri manneskju sem mun hreyfa við lífi þínu.

Hafðu það í huga að elskhugi þinn þarf líka að vera besti vinur þinn, það er lykillinn að ástinni. Þú fyllist miklum metnaði á þessum tímamótum sem þú ert á núna og því þarf að fylgja mikið hugrekki. Hugrekki er lykilhugtakið þitt í þessum mánuði og það á eftir að breyta lífi þínu, þú þarft að þora að tala við alla sem þér dettur í hug.

Enginn er æðri en þú, elsku Tvíburinn minn, og þú ert eins magnaður og þú vilt vera. Þú geislar af miklum styrk og fólki finnst þú alveg vera með þetta og þegar þér finnst það líka þá ertu kominn í mark!

Mottó: Gleðin er smitandi og ég er smitberi.



Frægir Tvíburar: Örn Árnason leikari, Óli Geir Jónsson plötusnúður, Bjarni töframaður, Hrund Þórsdóttir fréttakona, Össur Skarphéðinsson húmoristi, Johnny Depp leikari, Páll Magnússon fjölmiðlamaður, Kjartan Atli Kjartansson lífsspekúlant, Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari, Andri Freyr útvarpsmaður og Lýðveldið Ísland. 




Tengdar fréttir

Októberspá Siggu Kling – Krabbi: Taktu fótinn af bremsunni

Elsku uppáhalds Krabbinn minn. Þú ert opnasta og jákvæðasta stjörnumerkið og þetta segi ég vegna þess það hefur komið í ljós að þið Krabbarnir lesið stjörnuspána mína mest, takk fyrir það, elsku tilfinninga Krabbarnir mínir.

Októberspá Siggu Kling – Naut: Vertu svolítið montið

Elsku langflottasta Nautið mitt. Ekki reyna að vera fullkomið, það er svo drepleiðinlegt! Þú þarft að krydda tilveruna með húmor og kæruleysi, þá er ekki séns að þú sökkvir í áhyggjudrullupollinn.

Októberspá Siggu Kling – Vog: Sýndu traust

Elsku Vogin mín. Þú ert að fara inn á dásamlegt tímabil! Þú átt afmæli í þessum mánuði svo núna eru þín áramót og það sem gerist núna sýnir þér í hvaða átt þú ert að fara næstu mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.