Lífið

Októberspá Siggu Kling – Hrútur: Eltu drauma þína, ekki einstaklinga

Sigga Kling skrifar
Elsku einstaki Hrúturinn minn. Þessi mánuður segir þér að það að hika er það sama og tapa.

Þann 28. september er fullt tungl í Hrútnum og það sem meira er, það verður tunglmyrkvi og fullt tungl sem kallast blóðrautt tungl. Þetta tungl hefur svipaðan mátt og eldgos.

Tilfinningar þínar og framkvæmdaorka munu blossa upp í kjölfar þessa og það er mikilvægt að þú haldir ró þinni og látir ekki áhrif eða geðsveiflur annarra espa þig upp.

Það er bannað að rífast í þessum mánuði því þá þarft þú að segja fyrirgefðu. Í staðinn skalt þú nota frumkraft eldsins til að klára allt sem þú ert að vinna að og nota afgangsorkuna í að koma á fót nýjum verkefnum.

Þú skalt eltast við draumana þína en ekki fólk. Blóðþrýstingurinn verður á fullu svo settu mikinn kraft í ástina og njóttu þess að elskast eins og enginn sé morgundagurinn!

Þetta er svolítið stressandi tími en notaðu stressið sem orku elsku Hrútur því þá verður þú svo feginn þegar þú ert búinn að gera sem þú ætlaðir þér.

Mottó: Ég hef kraftinn.

Frægir Hrútar: Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, Silvía Lovetank listamaður, Marta María Jónasdóttir á Smartlandi, Björgvin Halldórsson söngvari, Kári Stefánsson vísindamaður, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, Hugh Hefner, Birgitta Jónsdóttir Pírati, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Elton John söngvari, Þóra í Atlanta, Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður, Berglind Pétursdóttir, Steinunn Jónsdóttir, sönkona AmabAdamA, Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365 miðla. 




Tengdar fréttir

Októberspá Siggu Kling – Krabbi: Taktu fótinn af bremsunni

Elsku uppáhalds Krabbinn minn. Þú ert opnasta og jákvæðasta stjörnumerkið og þetta segi ég vegna þess það hefur komið í ljós að þið Krabbarnir lesið stjörnuspána mína mest, takk fyrir það, elsku tilfinninga Krabbarnir mínir.

Októberspá Siggu Kling – Naut: Vertu svolítið montið

Elsku langflottasta Nautið mitt. Ekki reyna að vera fullkomið, það er svo drepleiðinlegt! Þú þarft að krydda tilveruna með húmor og kæruleysi, þá er ekki séns að þú sökkvir í áhyggjudrullupollinn.

Októberspá Siggu Kling – Vog: Sýndu traust

Elsku Vogin mín. Þú ert að fara inn á dásamlegt tímabil! Þú átt afmæli í þessum mánuði svo núna eru þín áramót og það sem gerist núna sýnir þér í hvaða átt þú ert að fara næstu mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.