Glamour

Heppnasta dúkka heims

Ritstjórn skrifar
Baksviðs á sýningu Chanel í vikunni, sáust fyrirsæturnar taka mynd af sér með lítilli, hvítri dúkku með sólgleraugu og heyrnartól. Þar skartaði dúkkan blárri augnförðun, samskonar þeirri og sást á sýningu Chanel.

Skömmu áður hafði sama dúkka sést baksviðs á annarri sýningu, einnig með sömu förðun og fyrirsæturnar þar.

En hvaða litla krútt er þetta? Jú, þetta er hann Pascal, dúkka förðunarmeistarans Tom Pecheux. Hann ferðast með eiganda sínum á tískusýningar og myndatökur, ferðalög, matarboð og stillir sér upp með fyrirsætum, hönnuðum og ljósmyndurum.

Má segja að ferðalag Pascal minni á garðálfinn í kvikmyndinni Amélie, sem ferðaðist á milli framandi staða og tók af sér myndir. 





 
Not enough leg room. @tompecheux move! #AirFrance

A photo posted by Pascal..e (@pascalpascale) on Jul 19, 2015 at 5:32pm PDT






×