Bíó og sjónvarp

Án hljóðbrellna hefði Everest orðið talsvert minna spennandi

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Baltasar Kormákur leikstýrði myndinni.
Baltasar Kormákur leikstýrði myndinni. vísir
Mínútulangt brot frá BBC úr kvikmyndinni Everest án allra hljóðbrellna sýnir glögglega hversu mikilvæg hljóðvinnsla í kvikmyndum er.

Áhorfendur myndarinnar hafa talað um að atriðið eins og það er í lokaútgáfu kvikmyndarinnar kalli fram gæsahúð vegna þess hve spennandi það er. Í atriðinu fer Josh Brolin yfir djúpt gil á ótraustum stiga og þegar snjór fellur úr hlíðinni við hlið hans skrikar honum fótur með þeim afleiðingum að um tíma virðist sem hann muni hrapa niður mörg hundruð metra og láta lífið. Samferðamönnum hans á fjallinu bregður við þetta og leita leiða í ofvæni til að bjarga honum. En án hljóðbrellna virðast leikararnir sallarólegir og þar af leiðandi verður áhorfandinn ekki eins spenntur.

Brotið má sjá hér að neðan og til samanburðar má sjá stiklu myndarinnar en þar er atriðið að finna á mínútu 1.30 með hljóðbrellum og eftirvinnslu. Munurinn er gífurlegur.

Hér að neðan má svo sjá stiklu myndarinnar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.