Glamour

Pat McGrath dreifði gulli yfir París

Ritstjórn skrifar
Skjáskot/Instagram
Einn frægasti förðunarfræðingur í heimi Pat McGrath kom gestum tískuvikunnar í París á óvart í gær er hún kom sér fyrir í miðbæ París ásamt 20 manna teymi þar sem markmiðið var að dreifa gulli yfir gesti. 

Viðburðurinn var í samvinnu við Vogue en McGrath auglýsti hann með stuttum fyrirvara á Instagramsíðunni sinni. Fjöldi fólks mætti á svæðið, frægir gestir á borð við Kris Jenner, Bella Hadid og Hailey Baldwin sem og almennir íbúar Parísarborgar en ljósmyndarinn Patrick Demarchelier sá um að festa allt saman á filmu. Gestir og gangandi voru einnig hvattir til að taka myndir og deila þeim á samfélagsmiðlum með kassamerkinu #pattakesparis.

Skemmtileg uppákoma á tískuvikunni í París sem nær hátindi sínum á næstu dögum. 




Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - tryggðu þér eintak!
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.





×