Þúsundir íslenskra heimila eru með áskrift að Netflix streymisveitunni. Fara þarf krókaleiðir til að kaupa áskrift af þjónustu fyrirtækisins, sem formlega séð er ekki á íslenskum markaði.
Greint er frá þessum niðurstöðum í skýrslu um rekstur og stöðu RÚV og er vitnað í könnun MMR.
Í könnun MMR, sem gerð var í mars síðastliðnum, kemur fram að 18,4 prósent heimila væru með Netflix-áskrift og 3,6 prósent með áskrift að sambærilegri streymisveitu, Hulu Plus.
Jafn mörg heimili eru, samkvæmt könnuninni, með áskrift að Netflix og Morgunblaðinu.
Stjarnan
KR