Lífið

Segir tímana hafa breyst: „Birtust engar fréttir um hommann í Stundinni okkar“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Felix Bergsson.
Felix Bergsson. Vísir/Heiða
„Páll Óskar var sannarlega flottur í Stundinni okkar á sunnudaginn. Hann er einstakur talsmaður kærleikans í mannlegum samskiptum,“ segir útvarpsmaðurinn Felix Bergsson í stöðufærslu á Facebook-síðu sinni.

Páls Óskar Hjálmtýsson var gestur Stundarinnar okkar á sunnudagskvöldið og ræddi hann við Nínu Dögg Filippusdóttur um fjölbreytileika ástarinnar og útskýrði fyrir henni af hverju hann ætti nú ekki kærustu.

Sjá einnig: Páll Óskar: „Sjaldan verið jafn stoltur af þátttöku minni í sjónvarpsþætti"

Hann væri samkynhneigður og yrði því ekki skotinn í stelpum. Fjallað hefur verið um þátttöku Páls í þættinum í erlendum miðlum. Felix fagnar því að tímarnir hafi svo sannarlega breyst.

„Þegar opinberlega samkynhneigður karlmaður tók við stjórn þáttarins haustið 1993 voru einhverjir sem hrukku í kút og einhverjir tuldruðu en þó aðallega í barminn. Ég hef aldrei sagt henni Siggu Rögnu, dagskrárstjóra barnaefnis hjá Sjónvarpinu, hversu hugrökk hún var að taka þetta skref. Hún á hrós skilið fyrir það. Opinberlega var þetta þó ekki rætt. Þögnin var þykk.“

Hann segir til að mynda að engar fréttir hafi birst um „hommann í Stundinni okkar".

„Á þeim tíma voru ekki einu sinni til löggjöf um staðfesta samvist á Íslandi. Homminn og samstjórnendur hans tóku á ýmsu í þematengdum þáttum árin 1993-1995, t.d. þeirri staðreynd að við erum ekki öll eins. Á þessu var líka mikil áhersla í jóladagatalinu „Leitin að Völundi“ árið 1996. Ég trúi því að þetta hafi haft eitthvað að segja því allt er þetta hluti af einu stóru púsluspili.“

Páll Óskar var sannarlega flottur í Stundinni okkar á sunnudaginn. Hann er einstakur talsmaður kærleikans í mannlegum...

Posted by Felix Bergsson on 21. október 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.