Bíó og sjónvarp

„Ætla að renna mér fyrstur Íslendinga á svifbretti“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Hafliði að störfum fyrir vefsíðu sína en til hægri hefur hann brugðið sér í gervi Marty McFly. Á Facebook-síðu þúsundþjalasmiðsins Hafliða má finna myndaalbúm þar sem hann er hinar ýmsu fígúrúr úr kvikmyndasögunni. Sjá að neðan.
Hafliði að störfum fyrir vefsíðu sína en til hægri hefur hann brugðið sér í gervi Marty McFly. Á Facebook-síðu þúsundþjalasmiðsins Hafliða má finna myndaalbúm þar sem hann er hinar ýmsu fígúrúr úr kvikmyndasögunni. Sjá að neðan. myndir/arnar daði/óskar róbertsson
„Ég hef beðið eftir þessum degi í 26 ár,“ segir Hafliði Breiðfjörð, framkvæmdastjóri, ljósmyndari og aðaleigandi vefsíðunnar Fótbolti.net, í samtali við Vísi. Dagurinn sem um ræðir er morgundagurinn en þá munu Marty McFly og Doc Brown snúa aftur til framtíðar ef eitthvað er að marka Back to the Future kvikmyndirnar.

Fyrsta kvikmyndin kom út árið 1985 en tvær aðrar fylgdu í kjölfarið árin 1989 og 1990. Í annarri myndinni ferðast Marty og Doc aftur til framtíðar til að aðstoða börn Marty sem eru í vanda. Tímasetningin sem þeir velja er 21. október 2015 klukkan 16.29.

Aðdáendur myndarinnar ætla margir hverjir að halda upp á daginn á ýmsan hátt. Myndirnar þrjár verða til að mynda allar sýndar í röð í Bíó Paradís en sýningin hefst á slaginu 16.29. Einnig eru dæmi um fólk sem ætlar að taka sér frí úr vinnu til að fagna tímamótunum.

„Ég er nú skráður „going á eventinu“ en er ekki með miða. Mögulega hefði maður átt að koma sér fyrir í Hill Valley og bíða eftir að þeir félagar birtist en það er of seint núna. Auk þess að borgin er náttúrulega ekki til,“ segir Hafliði. „Ég á þær allar til á DVD og það er aldrei að vita nema maður geri vel við sig og horfi á þetta allt á morgun.“

Hér að neðan má sjá myndband sem sýnir hvar höfundar myndarinnar hittu naglann á höfuðið hvað tækninýjungar varðar en einnig hvar þeir settu boltann fram hjá.

Back to the Future got a lot right about tech in 2015

The Back to the Future Trilogy got a lot of things right about what 2015 looks like.

Posted by Quartz on Tuesday, 20 October 2015
Svekktur með að svifbíllinn sé ekki kominn

Myndirnar spáðu fyrir um ótrúlega margar tækninýjungar sem margar hverjar hafa ræst. Þar á meðal má nefna fingrafaraskanna, sýndarveruleikagleraugu, myndsímtöl, þrívíddarmyndtækni og ýmis flygildi. Aðrar spár, svo sem sjálfþurrkandi föt, fljúgandi bílar og svifbretti, eiga enn eftir að líta dagsins ljós. 

„Ég man þegar ég sá þetta fyrst, þegar ég var ég var hvað níu eða tíu ára og ég hlakkaði alltaf til að eignast fljúgandi bíl. Ég er eiginlega sárastur yfir því að þeir séu ekki til. Ímyndaðu þér tímasparnaðinn,“ segir Hafliði en hann býr í Grafarvogi meðan fjölskyldan er að stærstum hluta í Hafnarfirði. „Þvílíkur munur að geta sloppið við umferðarteppunar og bara flogið á leiðarenda.“

Aðspurður um svifbrettin segir Hafliði að hann muni kaupa eitt slíkt um leið og þau mæti á eBay. „Ætli ég verði ekki sá fyrsti til að renna mér á slíku bretti hér á landi?“ segir hann og hlær. „Eigum við ekki að segja það? Ég geri ráð fyrir fjölmenni þegar ég rúlla mér fyrstu ferðina niðri á Ingólfstorgi.“ 

Að neðan má sjá Hafliða í skemmtilegum hlutverkum úr kvikmyndasögunni. Óskar Róbertsson á heiðurinn að myndunum.



Ég var fyrir löngu búinn að lofa að birta þessar myndir með fyrir og eftir og opið á alla. Þarna má semsagt sjá myndir...

Posted by Hafliði Breiðfjörð on Wednesday, June 1, 2011

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×