Sport

Leikmenn Bengals naktir í beinni útsendingu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Andy Dalton og félagar þurfa að passa sig er þeir fara í sturtu eftir leiki í framtíðinni.
Andy Dalton og félagar þurfa að passa sig er þeir fara í sturtu eftir leiki í framtíðinni. vísir/getty
NFL-sjónvarpsstöðin hefur beðið leikmenn Cincinnati Bengals afsökunar þar sem þeir sáust naktir á stöðinni um síðustu helgi.

NFL network hefur aðgang víða og meðal annars í búningsklefa félaganna. Eftir leik Bengals gegn Buffalo um helgina var farið inn í klefa Bengals og tekin viðtöl í beinni.

Myndatökumaðurinn passaði aftur á móti ekki upp á sitt sjónarhorn því það sást beint inn í sturtu liðsins á bak við manninn sem var í viðtali.

Grunlausir leikmenn Bengals skörtuðu því sínu heilagasta í beinni með Dubbel Dusch í hárinu.

Sjónvarpsstöðin hefur beðist afsökunar og segir að ekki hafi verið farið eftir starfsreglum. Upp á þetta verði passað í framtíðinni.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×