Lífið

Nóvemberspá Siggu Kling – Vatnsberinn: Þarft að fara að ákveða þig

Elsku skínandi vatnsberinn minn. Þú hefur svo afskaplega næmt auga fyrir öllu og þín ósk er sú að öll dýrin í skóginum séu vinir.

Þú ert fullkomlega fordómalaus og þá sérstaklega gagnvart fólki sem er aðeins öðruvísi á einhvern hátt. Það er kannski vegna þess að þú ert sjálfur svolítið öðruvísi og alveg einstakur!

Þú ert viljasterkur og getur verið svolítið þrasgjarn stundum en með hjarta úr gulli. Þó að þú komir þér í einhver vandræði með óþarfa þrasi þá er þér alltaf fyrirgefið því þú ert svo margbreytilegur og það er þín náðargáfa.

Þú vilt vera frjáls í ástinni en samt vera í föstu sambandi. Þetta er mótsögn og passar illa saman svo þú verður að fara að ákveða þig. Þú fékkst stórkostlegt ímyndunarafl í vöggugjöf og núna ættir þú að nýta það, elskan mín.

Þú ert yfirleitt svo glæsilegur útlits og vekur athygli en þú átt eftir að vekja athygli enn frekar fyrir hugvit þitt. Þú ert að finna leið til að afla mikilla peninga og það á þér eftir að finnast dásamlegt!

Margir af þeim vatnsberum sem eru á lausu munu stofna til sambands því þú verður að hafa ást í lífi þínu.

Mottó: Það er í lagi að breyta til

Frægir vatnsberar: Pacas hans Begga, Geir Sveinsson handknattleiksþjálfari, Halla himintungl, Clark Gable leikari, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi, Yoko Ono, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Katrín Jakobsdóttir þingkona, Hilmir Snær Guðnason leikari, Rikka sjónvarpskona, María Ólafsdóttir Júróvisjónstjarna, Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kastljóss, Gunna Dís útvarpskona, Höddi Magg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×