Lífið

Nóvemberspá Siggu Kling – Ljón: Settu kraft í félagslífið og hlustaðu á innsæið

Elsku hlýja, viðkvæma ljónið mitt. Tilfinningar þínar eru eins og regnboginn. Eina stundina ertu ástfangið af lífinu og hina stundina finnur þú ekki tilganginn með þessu öllu saman. Passaðu þig bara á því að fara ekki yfir strikið, það er það eina sem getur stoppað þig.

Taktu lífið föstum tökum án þess að það sé á kostnað annarra og þér mun líða svo miklu, miklu betur. Þú ert svo tilfinningaríkur svo passaðu þig á afbrýðisemi, hún fer þér afskaplega illa og bendir til veikleika. En hin 90% af ljónunum sem eru ekki að gera sig gráhærð með afbrýðisemi eru í góðum málum.

Hjartað þitt er úr gulli og þú ert að fá stóra summu greidda úr karmabankanum fljótlega.

Þú ert svo ástríðufull manneskja og settu ástina í forgang í nóvember. Innsæið þitt og djúpur skilningur mun sýna þér réttu leiðina svo hlustaðu á það.

Settu meiri kraft í félagslífið, þó svo að þú nennir því ekki, því þá mun framabrautin verða þér auðveldari. Vertu óspar á tíma þinn við alla, já alla! Þú veist ekki hver það er sem mun breyta örlögum þínum.

Sýndu þeim sem þér þykir erfiðastir þolinmæði og þá stendur þú uppi sem sigurvegari.

Mottó: Ég er svo rosalega sterkur en samt svo góður. 

Fræg ljón: Cara Delevingne fyrirsæta, Ágústa Eva Erlendsdóttir, leik- og söngkona, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Birgitta Haukdal söngkona, Barack Obama Bandaríkjaforseti, Ásdís Rán fyrisæta, Geir Ólafsson söngvari, Þórunn Antonía alheimsstjarna, Jón Óttar Ragnarsson, athafna- og fjölmiðlamaður, Jennifer Lopez söngkona, Diddú, Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona, Arnór Dan, söngvari Agent Fresco.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.