Innlent

Fjórum meðlimum Bandidos vísað úr landi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Bandidos er alræmdur mótórhjólaklúbbur.
Bandidos er alræmdur mótórhjólaklúbbur. Vísir/Getty
Fjórum meðlimum vélhjólagengis á Norðurlöndum var vísað úr landi í dag af Útlendingastofnun.

DV greinir frá því að mennirnir séu meðlimir í mótórhjólagengingu Bandidos en Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum vildi ekki staðfesta í samtali við Vísi að þeir væru í Bandidos, eingöngu að þeir væru meðlimir í mótórhjólagengi á Norðurlöndunum.

Mennirnir sem komu frá einu Norðurlandanna komiu til landsins í gær en var vísað úr landi með skírskotun til allsherjarreglu og almannaöryggis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×