Handbolti

Umfjöllun: Ísland - Frakkland 25-23 | Frábær sigur á heims- og Evrópumeisturunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron Rafn varði frábærlega í seinni hálfleik.
Aron Rafn varði frábærlega í seinni hálfleik. Vísir/EPA
Íslenska handboltalandsliðið vann frábæran tveggja marka sigur, 25-23, á heims- og Evrópu- og Ólympíumeisturum Frakka í Gulldeildinni, æfingamóti sem fer fram í Noregi, í dag.

Ísland hefur unnið báða leiki sína á mótinu til þessa en liðið lýkur leik gegn Dönum á morgun.

Íslenska liðið spilaði virkilega vel í dag og þá sérstaklega í seinni hálfleik. Frakkar leiddu með tveimur mörkum, 15-13, í hálfleik en í seinni hálfleik var íslenska vörnin frábær og Aron Rafn Eðvarðsson varði vel í markinu, alls 10 skot í seinni hálfleik.

Rúnar Kárason, Guðjón Valur Sigurðsson og Aron Pálmarsson voru markahæstir í íslenska liðinu með fjögur mörk hver.

Íslenska liðið spilaði mun betri varnarleik en gegn Norðmönnum á fimmtudaginn. Munurinn var hins vegar sá að markvarslan í fyrri hálfleiknum í leik dagsins var lítil sem engin en Björgvin Páll Gústavsson og Aron Rafn vörðu samtals þrjú skot á fyrstu 30 mínútum leiksins.

Sóknarleikur Íslands gekk að mestu vel þótt Aron Pálmarsson væri ekki með miðið jafn vel stillt og á fimmtudaginn.

Aron skoraði ekki í fyrri hálfleik en á móti kom að Ásgeir Örn Hallgrímsson og Arnór Atlason fundu sig betur en gegn Noregi og skiluðu samtals fimm mörkum í fyrri hálfleik. Hraðaupphlaup íslenska liðsins voru einnig beitt og þau skiluðu alls átta mörkum í dag.

Frakkar voru jafnan fyrri til að skora í fyrri hálfleik en náðu aldrei meira en eins marks forystu fyrr en undir lok hálfleiksins en þá náðu þeir tvívegis tveggja marka forskoti.

Staðan í hálfleik var 15-13. Timothey N'Guessan skoraði fyrsta mark seinni hálfleiks og kom Frökkum í fyrsta sinn þremur mörkum yfir, 16-13, en hann var markahæstur í liði Frakka í dag með fimm mörk úr aðeins sex skotum.

Íslenska liðið gafst þó ekki upp, skoraði sex af næstu átta mörkum leiksins og náði forystunni, 18-19. Aron skoraði þrjú þessara marka en hann var mjög heitur í upphafi seinni hálfleiks.

Kentin Mahe jafnaði metin í 19-19 úr vítakasti en þá kom frábær kafli hjá íslenska liðinu sem skoraði þrjú mörk í röð og komst þremur mörkum yfir, 19-22.

Aronarnir tveir voru í aðalhlutverki á þessum kafla en Aron Rafn varði hvert skotið á fætur öðru fyrir aftan öfluga íslenska vörn sem fékk aðeins á sig átta mörk í seinni hálfleik. Guðmundur Hólmar Helgason og Tandri Már Konráðsson átti afbragðs leik í miðri íslensku vörninni en sá síðarnefndi skoraði einnig tvö mörk eftir hraðaupphlaup í sínum öðrum landsleik.

Það var líka eins gott að vörn og markvarsla væru í lagi því sóknarleikur íslenska liðsins hikstaði verulega undir lokin. Franska vörnin var sterk og þá kom Thierry Omeyer í markið en hann varði fjögur af þeim sex skotum sem hann fékk á sig undir lok leiksins.

Omeyer getur verið ógnvekjandi í þessum ham en Rúnar var hvergi banginn. Þessi öfluga skytta fór mikinn undir lokin og skoraði þrjú síðustu mörk íslenska liðsins sem náði að landa frábærum sigri. Lokatölur 25-23, Íslandi í vil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×