Erlent

Herða aðgerðir gegn flóttamönnum

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Lars Lökke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur.
Lars Lökke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur. Vísir/AFP
Danska stjórnin leggur til að lögreglunni verði heimilt að leita í farangri flóttamanna og leggja hald á peninga og önnur verðmæti þeirra vegna kostnaðar við dvöl þeirra í Danmörku. Danskir fjölmiðlar greindu frá þessu að loknum fréttamannafundi Lars Lökke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, í gær.

Forsætisráðherrann kynnti aðgerðir í 34 liðum sem stemma eiga stigu við flóttamannastrauminum til Danmerkur en í ár hafa komið þangað um 15 þúsund flóttamenn.

Ríkisstjórn Danmerkur boðar að reistar verði tjaldbúðir í Danmörku þegar í næstu viku.

Stjórnarandstaðan og yfirmaður Rauða krossins gagnrýna þetta harðlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×