Innlent

Nöfn mannanna sem létust í flugslysinu

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Mennirnir sem létust í flugslysinu suðvestur af Hafnarfirði í gær hétu Hjalti Már Baldursson og Haukur Freyr Agnarsson. Hjalti og Haukur létu lífið þegar flugvél þeirra brotlenti í hrauninu vestan Kleifarvatns skammt frá Hraunkotsstapa. Mennirnir voru úrskurðaðir látnir á vettvangi. 

Hjalti Már var búsettur í Hafnarfirði og lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn. Haukur Freyr var búsettur í Garðabæ, ógiftur og barnlaus.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×