Innlent

Hraunið erfitt yfirferðar svo ferja þarf búnað og menn á vettvang með þyrlu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá aðgerðum á vettvangi í gær.
Frá aðgerðum á vettvangi í gær. vísir/ernir
Aðgerðir eru að hefjast á vettvangi í hrauninu vestan Kleifarvatns skammt frá Hraunkotsstapa en flugvél brotlenti þar síðdegis í gær. Tveir menn létust í slysinu en báðir voru þeir kennarar við Flugskóla Íslands.

Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að menn á vegum Rannsóknarnefndar samgönguslysa og rannsóknardeildar lögreglunnar muni vinna á vettvangi í dag.

„Aðstæður eru mjög erfiðar þar sem þarna er mosi, hraun og gjótur. Það er eiginlega þannig séð ófært að rölta þetta eða það tekur mjög langan tíma og því þarf að ferja búnað og menn með þyrlu Landhelgisgæslunnar,“ segir Margeir í samtali við Vísi.

Aðspurður hvenær áætlað er að rannsókn á vettvangi ljúki segir Margeir ómögulegt að segja til um það. Þegar henni lýkur mun flakið verða flutt í skýli Rannsóknarnefndar samgönguslysa á Reykjavíkurflugvelli sem fer með rannsókn slyssins.

Flugvélin sem fórst var af gerðinni Tecnam og var ein af fimm nýju vélum Flugskóla Íslands sem komu til landsins í upphafi mánaðarins. Samband við vélina rofnaði upp úr klukkan þrjú en lögreglu barst tilkynning um slysið um klukkan 15.10. Flak hennar fannst hálftíma síðar.

Hinir látnu voru á þrítugs- og fertugsaldri, og eins og áður segir kennarar við Flugskóla Íslands. Í tilkynningu frá skólanum sem send var út í gærkvöldi kemur fram að kennurum og nemendum í flugskólanum, sem og Tækniskólanum sem flugskólinn tilheyrir, hafi verið boðin áfallahjálp vegna slyssins.

Allt skólastarf fellur niður í dag vegna þessa, bæði í Flugskóla Íslands og Tækniskólanum.


Tengdar fréttir

Tveir létust í flugslysi

Vélin var kennsluvél flugskóla Íslands og var tekin í notkun fyrr í þessum mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×